Afhverju var ég fullur á virkum degi, afhverju mætti ég ekki í tíma, ... maður hálf skammast sín fyrir að vera ekki duglegri að uppfæra síðuna.. jæja. Búið að vera brjálað að gera hjá mér í þessum mánuði, skólinn að gera útaf við mann!! :s
Fór með Rönnsu pönsu á árshátíð VÍS síðasta laugardag, fín skemmtun þó svo að maturinn hafi verið sorp og þjónustan hörmung. Btw. kominn nýr aðili á dauðalistann minn: "Þjónninn sem sullaði rauðvíni á mig á árshátíðinni". drep'ann!!!
Annars er ég bara að klára skilaverkefni í tölvugrafík þessa stundina, erum að smíða 3D maze... uss ætli leikjaforritunin eigi við mann ??? veitteggi.
Jæja best að skella sér út í hagkaup, fá sér eitthvað í gogginn (vona bara að maður eigi eitthvað inn á kortinu.. hmm?). Erfitt að vera námsmaður, HVAR ERU NÁMSLÁNIN MÍN!!!
Afhverju eru allir að reyna að vera fyndnir og það líka með sama
Var gjörsamlega fullkomlega rassskelltur í stærðfræðiprófinu í morgun. Djöfulsins helvítis, lærði og lærði gat reiknað 98% dæmanna sem lögð voru fyrir en prófið var skítur! Alltof stutt og fáranlega langt... Páll Jónson: "Þú ert kominn á dauðalistann minn, beint fyrir neðan Guð!".
Hoho.. Loksins, loksins kallinn er kominn í fyrstu 2 stafa töluna.
Frábært. :D :D Bestu fréttir í heimi. Svo virðist sem Philips hafi fundið leið til að búa til dual-sided DVD-R diska. Fyrir ykkur sem vitið ekki hvað í helvítinu þetta þýðir þá er staðan á dvd markaðinum núna að skrifanlegir dvd diskar (DVD-R diskar) eru einungis single-sided því nútíma dvd brennarar geta einungis brennt í gegnum eitt lag. Á meðan að myndadvd diskarnir eru allir dual-layer (verður að framleiða tvo single-layer og pressa þá svo saman).
Vá næstum 3 vikur síðan maður hefur skrifað eitthvað á síðuna. Þvílíkt kæruleysi...