Föstudagurinn ..ohh föstudagurinn... Var notaður til að fjárfesta í nýja LOTR:ROTK extended útgáfunni... hamingja hamingja.. eyddi svo öllum föstudeginum og laugardeginum í að horfa á myndina og allt aukaefnið... ÞVÍLÍKT meistaraverk, ofurhamingja.. Bestu myndir í heimi, eða mynd.. fer eftir því hvernig maður sér þetta :)
T.d. kom margt í ljós:
Hver pissaði á hálsinn á vinkonu sinni?
(Rús-)rauðar-leðurbuxur?
Hver svaf hjá systur hans Simma?
(maður ætti kannski ekki að upplýsa fleirru)..
Búúúú á þá sem sögðust ætla að mæta en komu ekki, þið eruð léleg!
Því miður var vísindaferðin ekki til að auka álit mitt á tölvumyndum. Forstjóri TM (eða fúli-gaurinn eins og ég vill kalla hann) bar ekki af sér nokkurn þokka og var bara hrokafullur og leiðinlegur gaur. Ekki langar mig að vinna hjá þeim. Reyndar fengum við 20mínútna kennslu í Intellij frá þeim.. magnað þetta refactoring.. (og maður hélt að þeir myndu reyna að sýna okkur hvað þeir hafa verið að gera... *hmmff*..)
Fór svo á laugardaginn að sækja nýju gleraugun mín... held ég hendi nú ekki Alan-Michael gleraugunum strax... er nebblinlega að bíða eftir að þau komist aftur í tísku.. :) (eins gott að ég bað um sérþynnt gler.. hefði annars þurft að panta þessa umgjörð)
Ok hver gerir
Sorgarfréttir í metal-heiminum í dag, Darrell Abbott fyrverandi gítarleikari Pantera var sá sem skotinn var á tónleikunum í Ohio á miðvikudagskvöldið. Ég hef spilað Vulgar plötuna non-stop í dag sem tribute til þessa líka snilldar gítarspilara. Verst að draumurinn um Pantera tónleikana verða ekki að veruleika núna.. (

Styrmir stórhöfðingi á 26. ára afmæli í dag... sama dag og Half-life 2 kemur út !!!... uss ef þetta er ekki tilefni til að skrópa í vinnunni í dag, Styrmir, downloada HL2 af steam og byrja að spila...


Jæja presenteraði sjálfstæðaverkefnið mitt á fimmtudaginn var, þurfti að flytja hann á ensku vegna þess að það er skiptinemi í bekknum. Gekk svona um og ofan. Komst að því að þrátt fyrir að hafa lesið ógrynni af enskum-blaðsíðum þá get ég ekki tjáð mig skít á ensku... held ég neyðist til að útbúa helling af svona forskrifuðum blöðum í vasabroti sem ég get haft á mér í Kanada.

