Fór á árshátíði Visku á föstudaginn síðasta með minni heitt elskuðu. Svakalegt stuð, hvernig getur ball sem Páll Óskar spilar á klikkað? Það er bara ekki möguleiki! Bílskúrsbandið "Í svörtum fötum" spilaði reyndar mestan hluta kvöldsins og ég fyrst komst að því hve Jónsi (það er sko söngvarinn) getur ekki sungið fyrir fimm aura.. Jónsi vertu bara Metró í friði og mæmaðu lögin for the greater good... jesús (eða Gunni! eins og jesú var víst kallaður... hehe).
Árshátíðarmyndbandið var bara helvíti gott þetta árið. Það var enginn drepinn af eiturlyfja handrukkurum og fá sjálfsmorð. Krakkarnir í vídjó-nebbnini eiga klapp skilið fyrir ádeiluna sem þetta myndband var.. :D. Tóku alveg fyrir exponential smækkun kaffibollaskammtanna og hve fjöldi lausra stóla hefur lækkað undanfarið í skólanum. Guðfinna roðnaði a.m.k. Kannski einungis af völdum áfengisneyslu þar sem að ræðan hennar var algjört disaster...
Það þyrfti að fara taka fyrir þetta viðskiptarúnk sem er í þessum skóla. Hverjum dettur í hug að veita algjörum jólasveini sérstök verðlaun fyrir það að hafa mætt í flestar vísindaferðir og verið "fulli gaurinn" í hverju partíi. Díses það eina sem ég hélt að Gústi Carlító hefði áorkað var að taka stúdentinn á sex árum og útskrifast eftir það með lægstu einkun sögunnar úr Versló. Húrra... *klapp* þú ert hálfviti komdu og taktu á móti verðlaununum þínum... *húrra* Ég hefði neitað að taka þátt í þessum hálfvita gang.. díses.. "Ég er með 98% mætingu í vísó, æi þú mannst ég var veikur þarna einu sinni.. hnehnehne..." díses... ég hefði átt að hrópa hærra "En hvað mættirðu oft í tíma, helvítis hnakki?".
Hneyksli kvöldsins var að Hobbitarnir unnu ekki fyrir besta dansinn (var annað viðskiptafræði hneyksli) og að "FM hnakka" parið sem dansaði við vinstri hlið sviðsins hafi ekki verið hent út af gólfinu fyrir að vera over-metró... díssss...
Ekkert að gerast... tjellingin fer til Danmerkurinnar í næstu viku, oh well best að fá þá lánaða fallbyssu til að vekja mig á morgnanna. Alltaf, um leið og Rannveig er ekki heima þá asnast ég til að vaka frameftir allri nóttu að gera ekki neitt í tölvunni... hvað er málið? Er ég sá eini sem er þjakaður af þessari Maka-vöku?

Linux.. taka 2..
Jæja... heim að baka fyrir afmæli konunnar á morgun. 25 ára "oldie"... maður er nú bara farin að hugleiða upgrade? :)
Af slashdot í morgun:
Ó nei.. þetta er alltof fyndið...
.. eða eins og Justininn orðar það svo smoothlý sjálfur..."wardrobe malfunction"... 
Mikið að gerast í dag. Ég er skráður í námskeiðið Upplýsinga og samskiptatækni í skólakerfinu þar sem að við erum að skoða nýtingu tölvutækninnar í framhaldsskólum á Íslandi. Við erum að vinna verkefnin núna þar sem við eigum að kanna hvernig nemendur nota tölvur í tímum, til þess þá fengum við að fara í tíma í
Jæja við erum kominn í aðstöðuna okkar niðrí VÍS og lokaverkefnið er hafið af fullu. Aðstaðan er kominn upp og forrit instölluð, erum reyndar að bíða eftir .NET en það kemur vonandi innan tíðar.

Jæja kids, ef það er einhvern tíman ástæða fyrir því að uppfæra vírusvörnina (setja inn vírusvörn ef engin er á vélinni) og alvarlega hugsa um að setja upp eldvegg á vélina (eða virkja XP eldvegginn) þá er sá tími núna. Þessi skíta 

Við skulum bjóða OpenSource heiminn velkominn á síðuna mína. Húrra húrra. Loksins tók ég mig saman í andlitinu og drullaðist til að gera þessa síðu almennilega compatable við eitthvað annað en bara fucking IE. Núna virkar hún frábærlega í einum bezta browser í heimi
"Ungt fólk á Íslandi neytir sykurs og gosdrykkja í óhófi en fiskneysla í hópi þess fer minnkandi að því er fram kemur í nýrri skýrslu Manneldisráðs ... strákar á aldrinum 15-19 ára drekka að meðaltali tæpan lítra af gosdrykkjum á dag. Sykurneysla þeirra er jafnframt meiri en góðu hófi gegnir, eða um 143 grömm af viðbættum sykri á dag. Stúlkur á sama aldri drekka minna af gosi, en þess í stað drekka þær meira af vatni og sódavatni. Um 20% stúlkna í rannsókninni sögðust aldrei drekka sykrað gos..."
Andlát heilbrigðrar skynsemi

Ég á afmæli í dag, ég á afmæli í dag.. ég á afmæli sjálfur ég á afmæli í daaaaaaggg....
you guys...
Þá er það komið á hreint!... Langar bara að óska honum Braga til hamingju með stórsigurinn í World Idol keppninni þar sem að landi hans