Greyjið kallinn, haldiði að hann Micael Hanscom hafi ekki verið rekinn úr vinnunni sinni hjá Microsoft fyrir að halda úti blogg síðunni sinni. Hann vann í einhverri prentsmiðju hjá þeim og asnaðist til að taka myndir af staðnum og segja eitthvað aðeins of mikið á blogginu sínu.. og ekki að spyrja að því... *boot* beint á götuna.. hehehe.. dumb-ass.. Getið lesið meira um þetta hérna og hérna er svo síðan hans.. fín lesning um hvernig eigi að koma í veg fyrir að maður sé rekinn vegna bloggins síns ;)
Annars er maður bara rúmlega hálfnaður 2/3 í prófum... ekki búið að ganga nógu vel.. :( en jæja vonandi engar endurtektir...
Ég skellti mér á Extended útgáfuna af LOTR:TTT á þriðjudaginn.. var bara að klára að horfa á diskinn (já allt aukaefnið líka) og fucking hell.. þetta er óneitanlega flottasta dvd safn sem hefur verið gefið út. Þeir gjörsamlega náðu að toppa FOTR extended útgáfuna með þessum snilldar disk.. algjört must fyrir alla.. :D :D
*love it*
Úff.. einn af þessum dögunum, nenni hreinlega ekki að gera nokkurn skapaðan hlut, á að vera að læra stærðfræði en.. ég nenni því ekki.. jezzzz.... Eftir viku og einn dag þá er þessi önn búin (fyrir utan aðventunámskeiðið, sem ég er að vonast til að verði easy-peasy)... trúi þessu ekki djöfull er þetta fljótt að líða.. finnst eins og ég hafi bara verið að byrja um daginn...
Afhverju byrjaði ég ekki að læra fyrr, afhverju vakti ég svona seint í nótt, afhverju, afhverju...??? Jæja maður bara kominn á "fullt" í próflestur og ekki seinna vænna þar sem að stærðfræðiprófið er á þriðjudaginn, shit shit shit... Gotta'go...
Jæja, loksins lauk síðasta skilaverkefninu. :) Núna erum við Árni stoltir höfundar bezta (já ég segi besta) multiplayer 3D shooter sögunnar.... hehehe... smíða smá skýrslu og þessu er lokið. Eða þannig!!! Núna eru bara 4 dagar í fyrsta prófið og ég hef ekki lært staf!! Guð minn almáttugur, stefnir í óefni.. en jæja.. þetta hefst vonandi.
Iss.. ágætis sönnun á því hvað fólk getur verið miklir hálfvitar, (leimmér að umorða þetta..) bandaríkjamenn ERU hálfvitar....
David Attenborough kom til landsins í vikunni og hélt fyrirlestur á vegum endurmenntunastofnun Háskólans. Helvítin á þeim ég var búinn að tala við þá í október og spyrja þá út í þetta og þeir sögðust ætla að halda þetta í háskólabíó (sem hefði verið eina vitið í) en nei svo héldu þeir þetta í minnsta sal landsins í kópavogi !! Djöfulsins helvítis djöfull.. ég er brjálaður komst ekki að hitta formanninn, meistarann, Davíð kóng... var vísað frá vegna þess að húsið var fullt... fór næstum að gráta.. :(

Gleðilegan snjó !!!
Fór niðrí bæ í gærkveldi eftir að hafa hitt OfurNjarðar liðið í framsóknarhúsinu í kópavogi, helvítis stuð... Allir með sömu nörda brandarana og einhver gaur sem drakk bjór ógeðslega hægt (who was that guy anyway? ;) )... Allavegana þá lét ég mig sjást niðrí miðbæ í gær með Styrmi "Matrix" og ég get ekki annað en spurt, hvað er með útganginn á þessu pakki í dag (ekki Styrmi, hann var kúl as hell.. hohoho)?
Afhverju var ég fullur á virkum degi, afhverju mætti ég ekki í tíma, ... maður hálf skammast sín fyrir að vera ekki duglegri að uppfæra síðuna.. jæja. Búið að vera brjálað að gera hjá mér í þessum mánuði, skólinn að gera útaf við mann!! :s
Afhverju eru allir að reyna að vera fyndnir og það líka með sama
Var gjörsamlega fullkomlega rassskelltur í stærðfræðiprófinu í morgun. Djöfulsins helvítis, lærði og lærði gat reiknað 98% dæmanna sem lögð voru fyrir en prófið var skítur! Alltof stutt og fáranlega langt... Páll Jónson: "Þú ert kominn á dauðalistann minn, beint fyrir neðan Guð!".
Hoho.. Loksins, loksins kallinn er kominn í fyrstu 2 stafa töluna.
Frábært. :D :D Bestu fréttir í heimi. Svo virðist sem Philips hafi fundið leið til að búa til dual-sided DVD-R diska. Fyrir ykkur sem vitið ekki hvað í helvítinu þetta þýðir þá er staðan á dvd markaðinum núna að skrifanlegir dvd diskar (DVD-R diskar) eru einungis single-sided því nútíma dvd brennarar geta einungis brennt í gegnum eitt lag. Á meðan að myndadvd diskarnir eru allir dual-layer (verður að framleiða tvo single-layer og pressa þá svo saman).
Vá næstum 3 vikur síðan maður hefur skrifað eitthvað á síðuna. Þvílíkt kæruleysi...