31. desember 2003

sorp...Djöfull var áramótaskaupið LÉLEGT... algjört sorp, sorpití sorp... Jæja, best að sprengja meira og fá sér nokkur glös.. :D eigiði gott gamlárskvöld...

30. desember 2003


"I go over my friends houses and steal their remotes."

"I took my boyfriend's cell phone and deleted his ex-girlfriend's phone number from his contact list. "

"I once jerked off on Christmas Day."


Ótrúlegustu játningar...
Geta þau orðið sætari en þetta?

Krútípúttípútt...

29. desember 2003

Uss.. næstum því svona mikið en ekki alveg.. :)  best að vinna bara heima þegar svona bylur skellur á... Feitur og fínn eftir jólin, bara orðinn bolla :). Fékk helling af pökkum ólíkt honum Jónasi kallinnum, svona er þetta að halda jólin í sveitinni... færð ekkert nema bara eitthvað dót úr kaufffélaginu... (*bros*)

Meðal jóla-gersemana var nýr sími frá konunni, Sony-Ericsson græja... uss meira bruðlið í þessari elsku minn gamli var fínn hohoho.. en þessi nýi er þvílíkt flottur með öllum skamstöfununum WAP/GPRS og hvað það nú allt heitir... betri hljómgæði í hringitónunum en í gömlu fermingargræjunum mínum.. (uss uss). Maður var svo æstur að nördinn náði yfirtöku á mér og ég smíðaði WAP síðu fyrir nýju græjunua... þið sem getið skoðað hérna er tengillinn (styður aðeins XHTML) . Nörri.. :$

Haldiði að símanum hafi ekki fylgt myndavél og að sjálfsögðu rauk maður til og ætlaði að tengja þessa svaka græju við heimasíðuna. Skoðaði þetta MBlog símanns (það er nú meira helvítis sorpið) og svo GSMBlogg OgVoda (mikið skárra en ekki það sem ég vildi), ákvað eftir að hafa skoðað þetta að hreinlega bara að byrja smíði á mínu eigin email kerfi sem ég get sent myndir inn með tölvupósti í albúm á síðuna.. hehe.. :) Super-Nörd..

Komst ekki í vinnuna í dag vegna fannfergðar (snjóaður inni) og druslaði mér í að bæta við brosköllum í commentakerfið mitt góða.. hehe.. tékkit át...

24. desember 2003

Megi guð og gæfa gefa ykkur öllum gleðileg jól.
Bestu hamingjuóskir í dag sem og alla daga.



Eitthvað smá vegins til að koma ykkur í jólaskapið...

22. desember 2003

Af mbl.is:
Gagnslaus töfragripur
Íbúar þorps í Benua-sýslu í Nígeríu þurfa nú að finna sér nýjan töfralækni. Læknirinn, Ashi Terfa, dó þegar hann manaði viðskiptavin til að sannreyna sjálfur að töfragripur sem hann hafði útbúið handa honum og átti að bægja byssukúlum frá, virkaði.
Terfa setti gripinn um háls sér, lét viðskiptavininn, Umaa Akor, skjóta á sig. "Tilraunin reyndist banvæn fyrir töfralækninn," sagði talsmaður lögreglunnar.


... hann átti ekkert annað skilið.. þvílík heimska !!!

20. desember 2003

Mushroom music...?Þessi blogfærsla er til stór-vinar míns hans Jónasar... maðurinn bak við Genngengge gegenne egegegege lagið... hérna kallinn, núna verður gaman! gegegegegeg eggennnegegeg gggeeenge negegeg egnegne geng egneg egn egnegegeg gegegeg negnege geg... hahahaha :D

Í leit minni að þessu líka snilldarlagi, þá rakst ég einnig á annað frábært nostalgíu-lag... fyrir þá sem muna... áhyggjulausari tíma, þegar lífið var ljúft og auðvelt.. (snökt)... ;)

hahaha, you puny humans, I'm El Presidente.... you cannot control me, im amnippitant.. (or what ever...)

Eins og Guð afhenti móses steintöflurnar þá afhendi ég ykkur þetta logo, sem þið skulið byggja trú ykkar á mér á (ehh.. hmm)

19. desember 2003

Jól að hætti Norm!... þannig skal það vera við frúin á laugaveginum, þ.e.a.s. ég ætla að þræða barina og make-a-scene í hverri búð á leiðinniÍ öllu þessu jólaamstri þá gleymum við alveg heilum þjóðflokki... Jólasveinunum! Englendingarnir hugsa hinsvegar til þeirra og löngu vinnudagana... gott að vera jólasveinn í london þessi jól.

Annars eru jólin á næsta leyti (fyrir þá sem hafa ekki tekið eftir því). Og jólalagið í ár er lagið "Jól á jólum eru jól á hjólum"... jesús, hver semur slíka texta?.. eru jólalög notuð sem stökkpallur fyrir alla sönglaga noobana sem hafa aldrei meikað það?... Kræst... Annars hlusta ég einungis á eitt "jólalag" um þessar mundir... og sannkallað snilldar lag líka... have faith, tjekkið á því.. :)

"Jól á jólum... trallala,... eru jól á hjólum..."

13. desember 2003

Þýðist - Now Hiring

Hvernig mynduð þið reyna að stela forriturum frá samkeppnisaðilum? Electronic Arts í Canada eru (hingað til) með bestu auglýsinguna.... Hérna er fréttin á slashdot.org...

... Ohhh, það er svo sniðugt að vera nördi :D

11. desember 2003

Shjett... Ingó í danmörku maður sem ég hef ekki séð í áraraðir (þykist vera betri en ég) er víst með heimasíðu,.. jæja.. best að tjékka á hvað gaurinn hefur verið að bralla... hann verður boxaður í öxlina 19. des.. býst við því.. :D

Jólahlaðborð hjá tölvudeildinni (sem er reyndar búið að næstum reka mig úr) hjá VÍS á morgun,... usss.. ég meina hvað ætla þeir að bera fram þarna í Perlunni? Gullmola til að bryðja á.. shjitt.. fimmúst-kall!!! Svo á maður eftir að kaupa mjöðinn.. sé fram á að kaupa kút og geyma hann í bílnum hans Sjonna edrú (sjonni==kelling)... við getum svo "skotist á klósstið" eldrum og eins... hehehe...

Karl !!! Ég er búinn að brenna Bubba og við munum sko dansa, dansa heyrirðu, eins og vindurinn... ásamt því að níðast á "nýja manninum". Gummi verður boxaður, vígsluathöfn á Gullteignum annað kvöld.. hoho..

Shitt.. fimmústkall .. hvað meina'eir?

10. desember 2003

Bragi á ekki tölvu, og ég er lítið viðkvæmt blóm, alparós væri réttast....

Tip dagsins: Ekki flytja með fjölskylduna á Patró (eða ekki halda upp á 30. afmæli konunnar þinnar þar)

8. desember 2003

Landsins mestu jólasveinar hérna á ferð. Grísli og Hobbitinn í partí hjá Stauta... :D :D :D

6. desember 2003

Djöfulsins fucking fucking helví­tis fucking fucking fucking fuck Tölvugrafí­k shit fuck. Ég drep hann Kára þegar ég sé hann næst.. andskotanns helvítis djöfull... mér getur ekki hafa gengið svona illa á prófinu.. djöfullsins djöfull..
Life is sweet....now..Uss.. hvað á maður að gera? Bara fyrsta helgarfríið manns í langan tíma, hef ekkert að gera fyrir skólann og get ekkert gert í vinnunni þar sem mér var sparkað út fyrir nýja gaurinn.. (greinilega vilja ekki hafa mig í vinnu þarna hjá VÍS). Þannig að ég hef bara verið að slæpast í dag, horfa á vídjó og hanga á internetinu... lífið er ljúft :D

Fór á skauta með HR liðinu í gærkvöldi... uss hvað ég kann ekkert á þessar græjur (var líka bara 2. skiptið sem ég stíg á skauta), samt get ég sagt með fullri vissu að ég var kynþokkafyllsti skautarinn á svæðinu.. datt bara einu sinni (kenni reyndar Styrmi um það, afbrýðis-seggurinn náði stjórn á honum) hoho...

Nú er best að fara að tékka á jólagjöfunum fyrir pakkið, taka saman lista yfir þá hluti sem maður hefur efni á í Tiger. Held að ég verði grand þessi jólin og kaupi eitthvað á 400 kall fyrir Rönnsu pönnsu.. :D Erfitt að vera námsmaður... sei sei.. annars er heimabíóið alltaf efst á listanum hjá mér (hint-rannveig) og rallýbíllinn (hann verður að vera rauður til að ég taki við honum). Jólahvað?

4. desember 2003

Hmm... býr gleraugnasali í Austurberginu?

2. desember 2003

Er þetta lögreglan okkar?Bara til að minna fólk á í framhaldi af dóminum yfir lögreglumönnunum tveimur í hæstarétti í morgun:

Skv. 13.gr lögreglulaga málsgr. 2. Handhafa lögregluvalds ber að rækja starfa sinn af kostgæfni og samviskusemi og ávallt gæta fyllstu hlutlægni og réttsýni. Þeir skulu gæta þess að mönnum verði ekki gert tjón, óhagræði eða miski framar en óhjákvæmilegt er eftir því sem á stendur. Ekki mega þeir beita sakaðan mann harðræði fram yfir það sem lög heimila og nauðsynlegt er til þess að vinna bug á mótþróa hans gegn lögmætum aðgerðum né á annan hátt beita hann ólögmætri þvingun í orði eða verki, svo sem með hótunum.

@Lögreglan: Skamm þið eruð hérna til að passa okkur fyrir vondu gaurunum ekki til að lemja, berja og hóta.


Og í framhaldinu langaði mig bara að benda á að í hegningarlögunum er eftirfarandi klausa:
131. gr. Ef dómari eða annar opinber starfsmaður, sem á að halda uppi refsivaldi ríkisins, beitir ólöglegri aðferð til þess að koma manni til játningar eða sagna, framkvæmir ólöglega handtöku, fangelsan eða [leit]1) eða leggur að ólögum hald á skjöl eða aðra muni, þá varðar það sektum …2) eða fangelsi allt að 3 árum.
og svo þessi:
135. gr. Ef opinber starfsmaður tekur þátt í embættis- eða sýslunarbroti annars opinbers starfsmanns, sem undir hann er gefinn, eða leitast við að koma honum til að fremja slíkt brot, þá skal hann sæta þeirri refsingu, sem við því broti liggur, en þó svo aukinni, að bætt sé við hana allt að helmingi hennar.

Hvað eiga þessir 5 og 2 mánuðir að þýða..!!! ég bara spyr?

30. nóvember 2003

Dooooit baby.. oh yeah  drill, drill, drill, drill, drill....ALDREI SKAL ÉG TALA ILLA UM ÍTALSKT EURO AFTUR, ALDREI, ALDREI... guð minn almáttugur tékkiði á gellunum í þessu myndbandi.. svona eiga tónlistarmyndbönd að vera.. þetta er ALVÖRU.. doo it Benny !!!.. hristar skinkur.. :D

PowerTools + Hot Chicks = I LOVE IT...


24. nóvember 2003

Ljúúúúft... svona skal þetta verða...Síðasta prófið í dag (forritunarmál) vúúúhúúú.. og það er kominn snjór.. Þvílíkt jólalegt úti... Við (HR pakkið) tókum okkur VR bústað á leigu (hjá henni Þórunni elschu..) í Miðhúsaskógi og djöfull verður drukkið í kvöld.. hehehe.. forkælast í pottinum með snjóhrúgu á hausnum :D :D.. getur lífið verið betra.. þessi önn er núna einungis nokkra klukkutíma frá því að klárast.. og maður getur andað örlítið rólegar...

Bottoms up.. :D

20. nóvember 2003

Og verðlaunin í ár fara til....Greyjið kallinn, haldiði að hann Micael Hanscom hafi ekki verið rekinn úr vinnunni sinni hjá Microsoft fyrir að halda úti blogg síðunni sinni. Hann vann í einhverri prentsmiðju hjá þeim og asnaðist til að taka myndir af staðnum og segja eitthvað aðeins of mikið á blogginu sínu.. og ekki að spyrja að því... *boot* beint á götuna.. hehehe.. dumb-ass.. Getið lesið meira um þetta hérna og hérna er svo síðan hans.. fín lesning um hvernig eigi að koma í veg fyrir að maður sé rekinn vegna bloggins síns ;)

Annars er maður bara rúmlega hálfnaður 2/3 í prófum... ekki búið að ganga nógu vel.. :( en jæja vonandi engar endurtektir...

Oh my god.. þetta er geðveikur diskur, svo er hann líka svo fallegur við hliðina á FOTR í hillunni :DÉg skellti mér á Extended útgáfuna af LOTR:TTT á þriðjudaginn.. var bara að klára að horfa á diskinn (já allt aukaefnið líka) og fucking hell.. þetta er óneitanlega flottasta dvd safn sem hefur verið gefið út. Þeir gjörsamlega náðu að toppa FOTR extended útgáfuna með þessum snilldar disk.. algjört must fyrir alla.. :D :D

*love it*

16. nóvember 2003

Blahhhh.. nennessekki...Úff.. einn af þessum dögunum, nenni hreinlega ekki að gera nokkurn skapaðan hlut, á að vera að læra stærðfræði en.. ég nenni því ekki.. jezzzz.... Eftir viku og einn dag þá er þessi önn búin (fyrir utan aðventunámskeiðið, sem ég er að vonast til að verði easy-peasy)... trúi þessu ekki djöfull er þetta fljótt að líða.. finnst eins og ég hafi bara verið að byrja um daginn...

Fattaði það í morgun að ég hef ekki mætt í vinnuna í næstum 2 mánuði.. fuck, ætli maður sé ekki bara rekinn.?!?.. Tja læt þá ekki svoleiðis smáatriði stoppa mig í að mæta í jólaglöggið í desember og að sjálfsögðu hið víðfræga jólaHLAÐborð tölvudeildarinnar.. ;) Júhhhhúúú! ég ætla að vera fffuuuuuuuuuuulllur... Demit, best að halda áfram að heilda/deilda eða hvað það sem ég er nú annars að gera ;)..

p.s. Legg til að Karl Hreiðarsson verði með upphitunarpartí fyrir vefdeildina í ár! ... ég mæti með Bubba :D

15. nóvember 2003

Letingi og ekki sáttur við það...Afhverju byrjaði ég ekki að læra fyrr, afhverju vakti ég svona seint í nótt, afhverju, afhverju...??? Jæja maður bara kominn á "fullt" í próflestur og ekki seinna vænna þar sem að stærðfræðiprófið er á þriðjudaginn, shit shit shit... Gotta'go...

13. nóvember 2003

Hvernig mun þetta eiginlega enda hjá okkur? Bragi sendi mér snilldar lýsingu á stöðunni í heimsmálunum í dag og hvernig þetta muni hugsanlega örugglega enda... Tjékkit
Yeah.. þegar maður loksins eygir í markið þá færa þeir það fyrir aftan mann og maður þarf að hlaupa annan hring..Jæja, loksins lauk síðasta skilaverkefninu. :) Núna erum við Árni stoltir höfundar bezta (já ég segi besta) multiplayer 3D shooter sögunnar.... hehehe... smíða smá skýrslu og þessu er lokið. Eða þannig!!! Núna eru bara 4 dagar í fyrsta prófið og ég hef ekki lært staf!! Guð minn almáttugur, stefnir í óefni.. en jæja.. þetta hefst vonandi.

Svo verður dottið í það... hehehe.. ekki satt?

10. nóvember 2003

"C makes it easy to shoot yourself in the foot; C++ makes it harder, but when you do it blows your whole leg off." - Bjarne Stroustrup

... bara langaði að koma þessu á framfæri.
Sweeeet.....Ó nei!!! Grimma líf,

"The Lord of the Rings: The Two Towers Extended Version - Release date: 18 November, 2003."

Sama dag og ég byrja í prófum, demit, demit, demit... >(

Kaupa kaupa....

8. nóvember 2003

Open your eyesssss.....Iss.. ágætis sönnun á því hvað fólk getur verið miklir hálfvitar, (leimmér að umorða þetta..) bandaríkjamenn ERU hálfvitar....

Bandaríska kvikmyndin "Titanic" var valin versta kvikmynd allra tíma hjá áhorfendum sjónvarpsþáttar hjá BBC. Fjölmargar frægar kvikmyndir eru á listanum, svo sem "Pearl Harbor", "Artificial Intelligence og "Battlefield Earth". Nánar

Ég meina hver kaus Vanilla Sky inn á þennan lista.. heimskt lið... snilldar mynd .!!

*Open your eyes....*
Kóngurinn.. David er kóngurinn!!!David Attenborough kom til landsins í vikunni og hélt fyrirlestur á vegum endurmenntunastofnun Háskólans. Helvítin á þeim ég var búinn að tala við þá í október og spyrja þá út í þetta og þeir sögðust ætla að halda þetta í háskólabíó (sem hefði verið eina vitið í) en nei svo héldu þeir þetta í minnsta sal landsins í kópavogi !! Djöfulsins helvítis djöfull.. ég er brjálaður komst ekki að hitta formanninn, meistarann, Davíð kóng... var vísað frá vegna þess að húsið var fullt... fór næstum að gráta.. :(

Því ætlaði ég nú ekki að missa af áritununni sem kallinn var með í kringlunni í gær, dreif mig rúmlega hálftíma fyrir (reyndar aðeins og seinn) en samt var ekki það mikil röð kominn þá... en fuck hvað hún varð löng á endanum... hún náði allaleið innan úr Eymundson búðinni og framhjá Íslandsbanka útibúinu.... hehehe..

En þvílík snilld að hitta þennan mann, frábært... maður varð hreinlega að halda í sér svo manni myndi ekki bresta röddin.. ;) Hann áritaði fyrir mig dvd safnið sem ég keypti fyrir stuttu og svo skellti ég mér á bókina hans og fékk hann til að hripa í hana fyrir mig líka... gæti ekki verið meira hamingjusamur... :D :D

6. nóvember 2003

Ég bara verð... how gay is this guy.. ?
Viggi að pæla í enni!!

... oh jæja maður ætti kannski ekki að vera að gera grín, hann Viggi var nebblinega að pæla í henni því "Það þarf að pæla dálítið í henni en þannig eru allar góðar myndir."... hohoho *rofl* Full story er hérna... Held að Viggi sé að taka við sem HR módelið... (Sumir sálarvinir abbó?)

4. nóvember 2003

Alltaf styttist í síðustu matrix myndina:


...eða verður þessi sú síðasta ??? ;)


Allavegana ætla ég að taka mér frí og kíkja á hana... einhverjir aðrir?
Snjór í glugga... núna verður gaman :)Gleðilegan snjó !!!
Jæja þá er fyrsti alvöru snjódagur vetrarins orðinn að veruleika... get ekki annað sagt að ég sé lúmskt ánægður með það. Alltaf fallegt þegar það er kominn snjór :) Svo þýðir það líka að farið er að styttast í jólinn og þessari önn fari að ljúka... ahhh.. sweet.

Jæja, best að koma sér aftur að verki (skrópaði í morgun í skólann).. *roðn* verð að vinda mér í að klára síðasta Málstofu verkefnið... muniði að brosa... *bros*

2. nóvember 2003

Svalasti gaurinn í bænum.. djíses...Fór niðrí bæ í gærkveldi eftir að hafa hitt OfurNjarðar liðið í framsóknarhúsinu í kópavogi, helvítis stuð... Allir með sömu nörda brandarana og einhver gaur sem drakk bjór ógeðslega hægt (who was that guy anyway? ;) )... Allavegana þá lét ég mig sjást niðrí miðbæ í gær með Styrmi "Matrix" og ég get ekki annað en spurt, hvað er með útganginn á þessu pakki í dag (ekki Styrmi, hann var kúl as hell.. hohoho)?

Síðan hvenær komst eitthvert Redneck Trucker look í tísku? Fucking kræst þetta var eins og að labba inn í pöbb sem myndi sæma sér vel í Deliverance. Umkringdur einhverjum vannabí aumingjum, hvað er það? Er kúl/inn að vera aumingi í dag? Hvernig væri nú að taka til í þjóðfélaginu ef ungafólkinu finnst flott að vera aumingi? Lógum fyllibyttunum á hlemm og reynum að koma smá sens inn í hausinn á þessu pakki... nei núna er ég hættur!!

27. október 2003

Rauð, rauð-víííínnn, ekki fáða í skyyyrrtuna, næst ekki vel úr!Afhverju var ég fullur á virkum degi, afhverju mætti ég ekki í tíma, ... maður hálf skammast sín fyrir að vera ekki duglegri að uppfæra síðuna.. jæja. Búið að vera brjálað að gera hjá mér í þessum mánuði, skólinn að gera útaf við mann!! :s

Fór með Rönnsu pönsu á árshátíð VÍS síðasta laugardag, fín skemmtun þó svo að maturinn hafi verið sorp og þjónustan hörmung. Btw. kominn nýr aðili á dauðalistann minn: "Þjónninn sem sullaði rauðvíni á mig á árshátíðinni". drep'ann!!!

Annars er ég bara að klára skilaverkefni í tölvugrafík þessa stundina, erum að smíða 3D maze... uss ætli leikjaforritunin eigi við mann ??? veitteggi.
Jæja best að skella sér út í hagkaup, fá sér eitthvað í gogginn (vona bara að maður eigi eitthvað inn á kortinu.. hmm?). Erfitt að vera námsmaður, HVAR ERU NÁMSLÁNIN MÍN!!!

8. október 2003

Gæti einhver hundur verið meira miserable en þetta grey...Afhverju eru allir að reyna að vera fyndnir og það líka með sama bjánalega brandarann... En þessi má eiga það að þetta er svo sannarlega léééélegasti brandari í heimi...

Hérna er gamall en góður bílabrautaleikur fyrir þá sem nenna (ekki frekar en ég) að gera nokkurn skapaðan hlut annað en að hanga...

7. október 2003

Heimskir menn finna líka til í sálinni...Var gjörsamlega fullkomlega rassskelltur í stærðfræðiprófinu í morgun. Djöfulsins helvítis, lærði og lærði gat reiknað 98% dæmanna sem lögð voru fyrir en prófið var skítur! Alltof stutt og fáranlega langt... Páll Jónson: "Þú ert kominn á dauðalistann minn, beint fyrir neðan Guð!".

Dauðalistinn:
Guð
Páll Jónsson *new*
Ágúst Valgeirsson
Gaurinn sem henti egginu í bílinn minn í morgun
Hayden Christensen

Annars tók ég mikilvæga starfsframa-ákvörðun í dag. Hef ákveðið að verða einungis rukkari, róni eða eitthvað þaðan af verra. Sjáumst í ræsinu!

6. október 2003

Hoho.. fyndið á mánudegi :D Munið að setja á ykkur heyrnartólin og hækka...

p.s. og svo einn fyrir tölvunördana: Hvað er "Programming fluid"?
Nú verða ekki fleiri svona partí.. :)Hoho.. Loksins, loksins kallinn er kominn í fyrstu 2 stafa töluna.

Fékk allt í einu þvílíka veiki í að spila gamla góða Mega Man (af Nitendo) aftur, og vitiði að internetið er uppáhaldsstaðurinn minn í heiminum. Þurfti ekki nema bara að leita á google og þá *púff*.. allir leikirnir og emulator.. lífið er ljúft. Og hérna er svo síðan sem kveikti áhugann aftur: planet megaman. Frábær síða, maður hélt að gamli megaman væri dauður úr öllum æðum en svo rekst maður á svona snilldarsíður (fólk er svo furðulegt). Mæli hiklaust með að þið sækið MegaMan The Movie fan trailerinn... meira en lítið fyndið...

4. október 2003

Herra og frú Philips að spegúlera í nýju diskunum... sætir saman :)Frábært. :D :D Bestu fréttir í heimi. Svo virðist sem Philips hafi fundið leið til að búa til dual-sided DVD-R diska. Fyrir ykkur sem vitið ekki hvað í helvítinu þetta þýðir þá er staðan á dvd markaðinum núna að skrifanlegir dvd diskar (DVD-R diskar) eru einungis single-sided því nútíma dvd brennarar geta einungis brennt í gegnum eitt lag. Á meðan að myndadvd diskarnir eru allir dual-layer (verður að framleiða tvo single-layer og pressa þá svo saman).

Þetta eru að sjálfsögðu frábærar fréttir því núna tvöfaldast gagnamagnið á einum disk úr 4 GB í rúmlega 8GB og þessir nýju diskar eru víst fullkomlega compatable við dvd tæknina sem er við lýði í dag :) Þeir eru svo sniðugir hjá Philips.. Húrra fyrir þeim!! Lesiði meira um þetta á síðunni hjá Philips.
Vá næstum 3 vikur síðan maður hefur skrifað eitthvað á síðuna. Þvílíkt kæruleysi...
Annars er ekkert að frétta af manni annað en að skólinn er gjörsamlega að drekkja manni í vinnu, byrjaði í miðannaprófum í gær og hef verið að læra eins og fother mucker undanfarnar vikur. Usss ekki einu sinni neitt almennilegt slúður í gangi!

Einhverjir djöfulsins hálfvitar brutust inn í Valve og stálu source'inum af Half-life 2! Það var víst ástæðan fyrir að honum seinkaði þessi lifandis býsn núna 2 vikum fyrir launch. Endemis gras-asnar! Og ástæðan fyrir öllu þessu var helvítis Outlook, meira djöfulsins sorpið sem kemur frá Billa þessa dagana. Lesiði meira um lekann hér og nánar um update frá Valve hérna. Helvítis aumingjar, mig sem hefur hlakkað svo svívirðilega mikið til að spila þennan leik!

Ef þið vitið ekkert hvað Half-life 2 er þá er það nýjasti break-through 3D tölvuleikurinn sem von er á (eða var von á). Meira um leikinn á þessari slóð.

18. september 2003

Hver kannast ekki við þennan fílínginn?Þessa vikuna hefur verið brjálað að gera hjá mér í skólanum, endalaus skilaverkefni (og ekki af léttari toganum). En framtíðin er bjartari, ætla að reyna að komast í vísindaferð á morgun (förum í Landsvirkjun) og svo er karókí kvöld í vinnunni. Hehehe, þannig að maður mun mæta sót-ölvaður beint í karókíið, ætli maður taki ekki þátt (en fer algjörlega eftir áfengismagni, sennilega ryðst inn á svið eftir keppnina og tek nokkur vel valin bubbalög.. hoho). Hafiði það annars bara sem best og góða helgi.

p.s. hérna er nauðsynlegt tól fyrir alla sem ákveða að fara á 3ja árið í tölvunarfræði!!! :(

15. september 2003

Að vera eða vera ekki hænsn....Lítið að gerast þessa dagana nema náttúrulega skólinn :) Kíkiði á þennan brain teaser... Sker endanlega úr um hvort að þú sért maður eða hæna...

Ætlaði að skella mér með kvensunni á Once upon a time in Mexico í gær en "urðum" að vera heima að horfa á Practice... jezzz hvað er með þessa lögfræðingaþætti í sjónvarpinu.. er Sledge og Hunter ekki í tísku lengur.. ???

11. september 2003

Karen bara komin með heimasíðu! Karen sæta er komin með heimasíðu, mæli með að allir lesi hana því hún er ein sú fyndnasta stelpa sem ég þekki.. :) (að sjálfsögðu fyrir utan mína heitt elskuðu Rönnsu Pönnsu).

Lítið nýtt að frétta, nema hvað að LOKSINS, ó loksins fengum við ísskápinn til baka (fucking finally) og ég druslaði honum upp á 3ju hæð með hjálp stór-vinar míns hans Stefáns kerfisstjóra ;) Annars bara læra læra.. reyndar er ég kominn með svo þvílíkt ógeð á að lesa/læra að ég held ég taki mér frí í dag og glápi bara á vídjó og reyni að brenna eitthvað af þessum "gögnum" sem hafa verið að safnast fyrir á harðadisknum mínum ;) hehehe... auf wiedersehen...

7. september 2003

Hohoho.. það var helvíti fínt í vísindaferðinni á föstudaginn, reyndar klikkaði Ölgerðin algjörlega á veitingunum því það var ekkert nema bjór og snakk :( þannig að maður varð alveg peru-ölvaður á nótæm. Við skelltum okkur því bara á Amigos og fengum okkur smá í gogginn (og nokkur skot) usss, hvænær ætla ég að læra!... Ekki fleiri en 1 tequila staup... var orðinn helvíti skrautlegur eftir 3.. hehehe...

Dvergar? ;)
Góðir saman :)

Nú fer maður að stunda vísindaferðirnar... fyrst maður borgaði í Viskuna.. Áfram áfengi, upp með ölvun almúgans...!!!

p.s. á myndavef visku eru fleiri myndir af ferðinni, mæli með að þið byrjið á þessari hérna.. hehehehe

5. september 2003

Þetta verður sjónar-/bjór-hornið í kvöld, botninn á freyðandi glasi.. :DAnsans, ftp aðgangurinn að skólasvæðinu er eitthvað að stríða mér þessa dagana þannig að ég get ekki postað neinu nýju. Jæja, við bíðum bara róleg. Annars ætla ég að sækja ísskápinn úr viðgerð í dag og í framhaldi af því neyðist til að drattast með hann upp á 3ju hæð (aftur :s). Er samt mjög sáttur við þá hjá Frysti og kæliþjónustunni, snöggir og næs gaurar.

Að sjálfsögðu má ekki gleyma að í kvöld fer ég í mína fyrstu (sveindóms) vísindaferð með HR. Farið verður í ölgerðina og þar skoðaðar nýjustu bjórdælurnar og glösin. Hehe.. "This is a good day to drink..." segi ég með smá Star Trek nörda hljómi... :)

4. september 2003

I cast you out, unclean spirit! In the name of our Lord Jesus Christ! Arg.. vík satan! Þessi dagur er dagur djöfulsins, eintómar freistingar allsstaðar. Byrjar á því að HR er 5 ára í dag og að sjálfsögðu var boðið upp á köku fyrir alla í skólanum (hún skákaði nú næstum Reykjavík 200 ára kökunni '86 í lengd).. uss hvað maður svitnaði og neyddist til að flýja húsið og mæta í vinnuna. Ekki tók þá betra við heldur en að okkur í deildinni var boðið upp á svakalega afmælisköku (algjör sprengja). En sem betur fer stóðst ég þessar freistingar djöfulsins og held ótrauður áfram í mechrununni "Yet another day"... :)

Annars hafa flutningarnir gengið bara helvíti vel, þó svo að ég hafi verið svo viðbjóðslega upptekinn í skólanum að ég hef ekkert gert (ekki einu sinni uppfært heimasíðuna) í að stilla upp í herberginu okkar. Nema að sjálfsögðu að tuða og röfla yfir því sem Rannveig hefur gert. En jæja.. við ætlum að skella okkur á bresku kvikmyndahátíðina í kvöld (gera eitthvað menningarlegt saman) og sjá The Magdalene Sisters. Skella okkur á deit saman, nauðsynlegt :)

29. ágúst 2003

Og fólk vogar að segja að skólinn sé ekkert nema sældarlíf...Flutt! og núna er það bara skólinn... fuck! Ég sem ætlaði að vinna upp um helgina það sem ég hef verið að sleppa í síðustu viku (sökum flutningavesens) og þá er bara skellt á okkar hóp huge fyrirlestrar verkefni í málstofunni í næstu viku. Tveir fyrirlestrar um "Dynamic memory in the Kernel" og við eigum að tala um það í 2x40 mín.. guð minn almáttugur. Eins gott að maður er með góðu fólki í hóp. :)

Jæja allavegana búinn að prenta út allt efni sem ég fann um þetta á netinu (>500 síður) og nú er bara að lesa :s. Ekkert vídjó eins og planið gerði ráð fyrir... bara lestur, en jæja, samt lúmskt feginn að klára þennan fyrirlestrarpakka strax meðan að það er ekki of hektískt í skólanum (engin alvöru verkefnavinna hafinn, bara dæmatímar og lestur).

Hérna er einn gamall og góður í nýjum búningi.. sjóorrusta í flash, svona þegar maður verður leiður á að lesa...

28. ágúst 2003

Ég er hálfviti...Ég er svo heimskur! Við erum að klára að flytja í dag, þ.e. í kvöld erum við endanlega flutt heim til mömmu minnar og pabba. Í gær vorum við að ganga frá íbúðinni, þ.e. þrífa og þ.h. Að sjálfsögðu var hluti af því að afþýða ísskápinn. Þar komum við að heimsku gerðum mínum. Málið var að það hafði safnast um sæmilegur klaki í frystiboxið sem þurfti að losna við. Ég hugsaði með mér að best væri að reyna að vinna aðeins á þessu svo þetta myndi nú þiðna á innan við viku. Það tókst ekki betur en svo að mér tókst að gera gat á kælielementið í skápnum og fékk allt freonið úr skápnum frussandi framan í mig! Þvílíkur dumbass!! Ég hringdi náttúrulega í dauðans ofboði í einhverja viðgerðarkalla (lenti reyndar á helvíti fínum gaur sem róaði mig niður og fullvissaði um að ég myndi ekki deyja af freoni). En eins og allt annað sem kemur fyrir mig þá krefst þetta þess að ég drusla risa-ísskáp niður af 3ju hæð og í viðgerð í kópavoginum útaf gati sem er minna en títiprjónshaus!! Ég er svo mikill hálfviti! Annars var þessi dagur allur svona (og reyndar öll vikan), tölvan klikkaði í skólanum, eyðilagði ísskápinn, stíflaði posann í húsasmíðjunni og tókst að rekast í allt!

Sorglegasta við daginn í gær var að ég hef ekki fundið neinn sem vill taka við litlu músunum okkar og neyddist því til að finna dýrabúð sem gæti tekið við þeim fyrir mig. :'( Öðlingurinn sem er með furðudýr og fylgifiska í kópavoginum aumkaði sér yfir mér og tók þær í fóstur fyrir mig. Skemmtileg dýrabúð sem staðsett er í breyttum bílskúr, mæli með að þið dýravinir kíkið þangað (leiðbeiningarnar eru á vefnum þeirra).

25. ágúst 2003

Algjör lifesaver fyrir menn með kröfuharðar internet konurKominn tími til að tengjast! Jæja ég fór loksins í að laga heimilistölvuna og undirbúa hana fyrir flutningin heim. Þurfti að útbúa lítið LAN til að hægt væri að samnýta sömu ADSL tenginguna fyrir allar tölvurnar heima. Að sjálfsögðu þá er manni gert erfitt fyrir með því að vinnan ákvað að nota einhvern helvítis (meingallaðan) Cisco VPN hugbúnað til að sjá um dulkóðun á sendingum. En þá virkar ICS (internet connection sharing) í windows ekki! Djöfull!

En gamla góða WinGate kemur til bjargar. Ég hafði prófað eldri útgáfu af þessu forriti (fyrir um 2 árum síðan) og reyndist hún ágætlega en ICS virkaði þá fyrir mig þannig að ég lét það vera. Ég setti upp núna útgáfu 5.0.7 af Wingate og viti menn allt virkaði eins og í sögu, allar tölvur tengdar á netinu og í gegnum sömu tenginguna.. happy, happy, happy. (Bara að lesa yfir install instructions áður en forritið er sett upp og þá virkar allt). Hérna (message 5/11) eru leiðbeiningar um hvernig eigi að fá clientana til að tengjast.

Kalli, tjekkit át! ;)

21. ágúst 2003

Ef Rannveig fengi að ráða...Jæja, þá er loksins (því miður) komið að því að við skötuhjúin flytjum af Njálsgötunni og heim í heiðardalinn. Flytja aftur heim í fangið á gömlu hjónunum í Rjúpufellinu á meðan að við klárum námið okkar. Fuck hvað gamla herbergið mitt er "orðið" lítið (kenni að sjálfssögðu bumbunni um hve mikið herbergið hefur minnkað).

Já, þetta hefur hangið yfir okkur síðan við fluttum hingað í 101 fyrir tæpum 2 árum síðan (úff.. þvílíkur tími) og núna er komið að því. Maður verður bara að yfirgefa pleisið! Ég meina, hver hefur efni á því að vera í fullu námi (+lokaverkefni) og leigja á 60-70 þús á mánuði. Iss bara rugl ef einhver spyr mig. Því verðum við að fá að flýja aftur heim í oggupínulitla 12 fermetra, en þetta verður fínt :) (spyrjið bara Sollu hún hefur reynsluna). Það sorglegasta við þetta allt saman er að litlu mýslurnar okkar (Bolla og Adda) geta ekki flutt með okkur í "kústaskápinn". :'(

Athugið: Auglýst er eftir góðu heimili fyrir tvær sætar (soon to be) heimilislausar mýslur (ein svört og hin hvít). Af afspurn segjast þær báðar vera "mjög góðar og þægilegar í umgengni". Er enginn hjartgóður músaunnandi þarna úti sem getur veitt þessum hnoðrum hlýjan stað, ást og umhyggju? [myndir af mýslum]

18. ágúst 2003

Tókum ekki eftir þessu skilti er við komum á staðinn.. >(Helvítis andskoti !!!! Ég veiddi ekki nokkurn skapaðan hlut í veiðiferðinni góðu. Við komum austur í ágætis veðri um klukkan 2 á föstudaginn og hentum draslinu inn í hús og drifum okkur út að veiða. Lítið vissum við að þetta yrði síðustu þurru klukkustundirnar sem við myndum eiga þarna. Ekkert var veitt á föstudaginn, en við kipptum okkur nú ekki mikið upp við það og vöknuðum eldhress á laugardagsmorgun. Okkar beið þá hin þokkalegasta rigning og slagveður en það dró ekki úr manni kraftinn og við veiddum alveg frá 8 - 13 þann daginn, án þess að verða svo mikið sem var við nokkurn skapaðan hlut.
Eftir hádegi þá veiddi Stefán einhvern smá titt (sem ég held að hann hafi ekki fengið einu sinni á stöngina heldur synti fiskurinn í sjálfsvígshug beint upp í fjöru og oní töskuna hans Stebba), en maður sjálfur ekkert, EKKERT. Enda hellti maður í sig rauðvíninu og bjórnum um kvöldið, til að lina þjáningarnar. Á sunnudaginn þá urðum við aðeins varir við algjöra smá titti (bleikju putta) en þeim var sleppt um leið (grunar að ég hafi hreinlega veitt sama tittinn tvisvar ;) )...

Annars var þetta ágætis veiðiferð en á næsta ári verður farið seinna og einhvert annað (og engu plássi í töskunum sóað í stuttbuxur og svoleiðis vitleysu)...

15. ágúst 2003

Jæja þá er loksins komið að því! Maður er á leiðinni í (fyrstu og sennilega síðustu) alvöru veiði sumarsins, VÚHúúúú... :) Ætla að skella mér ásamt nokkru góðu fólki að veiða í Tungufljóti (austan við Vík í Mýrdal) en þangað hef ég ekki komið áður.

Er kominn með allar græjur (þó ekki vöðlur, en oh well gömlu góðu stígvélin verða bara að duga). Tek með mér myndavélina og ekki er þessi veiðiferð slæmt myndefni fyrir fyrsta myndaalbúmið á þessari síðu :D. Annars er best að ég stilli vélina í panorama stillingu (svona svo ég nái þeim stóra örugglega öllum í mynd... hehehe). Later dúds..

13. ágúst 2003

Kærastan hans Braga?Næst síðasti vinnudagurin fyrir frí/skóla. Jæja hlaut að koma að því, en hvað varð um sumarið? Mér finnst eins og ég hafi ekki getað gert nema brot af því sem ég ætlaði mér :s Oh, well það kemur sumar eftir þetta sumar og vetur eftir þennan vetur...

Bragi gamli durgur minnti mig á þennan líka snilldar remix disk sem ég átti af NIN disknum sem ég talaði um í síðustu viku. "Further Down The Spiral", bara snilld. Ég smelli inn nokkrum lögum af disknum hérna fyrir ykkur til að njóta.
  • Piggy (Nothing Can Stop Me Now): snilldar hardcore remix af orginal laginu (sem var í rólegari kantinum). Án efa bezta lag plötunnar.[sækja]

  • At The Heart Of It All: frábært instrumental mix af gömlu og góðu Apex Twin lagi. Frábært [sækja]

  • Self Destruction, Final: Geðsýkislegur endir á góðum diski. Ef það er eitthvað lag sem maður á að hlusta á í vondu skapi ;) [sækja]
Enn einn vinnudagurinn að enda og ég nenni ekki heim... hvað ætli maður myndi gera ef maður vissi að maður myndi deyja á morgun?

12. ágúst 2003

Nihon-jin desu (ég er japanskur)"Kon'nichi wa"! Jæja nú er komið að því, húsið heima er fullt af japönum og ég er á leiðinni í mat að hitta þá. Sagan er að systir mín var skiptinemi í Japan fyrir 2 árum síðan og í ár ákváðu systur hennar (þessar japönsku) að koma í heimsókn til Íslands. Þær eru þrjár og gista heima hjá gömlu hjónunum í Rjúpufellinu (við lánuðum þeim nýja rúmið sem við R.vorum að kaupa).

Alla vegana þá vorum við hjónakornin boðin í mat í kvöld í ramm-íslenzka ýsu og soðnar kartöflur úr þykkvabænum (bjakk..). Ég hef því verið að skerpa aðeins "internatíónalinn" í mér í dag og æfa nokkrar góðar japanskar setningar. Hehe, maður er meira að segja kominn með þá fyrstu:
"Kon'nichi wa! Watashi wa Sverrir desu. Hajimemashte."
Þetta þýðir "Halló! Ég heiti Sverrir. Gaman að hitta þig." Ég er viss um að ég á eftir að slá í gegn, for shure :). Það er nefninlega orðið frægt hvernig ég sló rækilega í gegn um árið þegar ég reyndi að hringja í systur mína meðan hún var úti í Japan. Þá, eins og nú, var ég einmitt búinn að æfa stíft "Halló! Gæti ég fengið að tala við Eyrúnu." á japönsku. Símtalið gekk að óskum og ég fór með mína rullu, ég var ekki fyrr búinn að sleppa síðasta orðinu þegar viðmælandi minn (sem var ein systranna og að sjálfsögðu japönsk í húð og hár) missti sig alveg og blaðraði helling á japönsku við mig. Guð minn almáttugur eftir að ég hafði (eins og biluð plata) endurtekið japönsku-rulluna nokkrum sinnum til viðbótar og hún hafði spjallað við mig (um god-kows-what) í svona 5 mínútur þá neyddist ég bara til að ropa upp úr mér "Can i speak to Eyrún" þar sem ég vissi ekkert hvort ég væri í raun að tala japönsku eða ekki (hafði þennan texta kannski ekki alveg á hreinu?).

Alla vegana þá fer ég fullur bjartsýni í mat heim í kvöld. :)

11. ágúst 2003

Kallinn bara í beinni :)Hoho.. vefmyndavélar eru fyndnar :P. Kíkið á kallinn í beinni

Annars var eitthvað lítið gert um helgina, var reyndar plataður í Hinsegin daga gönguna. Uss hvað maður þurfti þar að nota alla 1300 mm vatnsvörnina á regnjakkanum sínum (ekki satt Karen ;) )... Þetta var annars fínt, þó svo að þeir hefðu eflaust geta fundið betri skemmtiatriði (eða kannski er drag ekki mitt thing) "Ég er svo Gay!". Við hjúin erum farin að pakka niður, eða réttara sagt Rannveig er byrjuð, ég er bara letihaugur. Úff bara 4 dagar eftir í vinnunni og svo sumarfrí :D :D

8. ágúst 2003


Aflakóngarnir

Hohoho.. ef þetta er ekki sniðugasta myndin frá kópi 2003 þá veit ég ekki hvað :D :D. Örvar compjúter-nörd tók þessar myndir og því miður þá voru einhver leiðindi með myndavélina þannig að allar myndirnar urðu hálf óskýrar. En maður fær fótósjoppið til að redda þessu ;) ... annars held ég að Rannveig sé með minnsta fiskinn þarna á myndinni (hehe ég veiddi einn og það varð að stilla myndavélinni í widescreen til að ná mynd af honum öllum í einu)
Plötuumslag The Downward SpiralÍ morgun þá tók ég með mér gamla góða Nine Inch Nails diskinn minn "The Downward Spiral" í vinnuna þar sem ég ætlaði mér að bjarga honum (orðinn soldið rispaður) frá glötun og afrita hann áður en hann myndi hætta að spilast. Ég fattaði þá aftur eftir langan tíma hvað þetta er góður diskur. Því langaði mig að deila honum með ykkur í dag.

Nine Inch Nails eða NIN er í raun eins manns hljómsveitin hans Trent Reznor, en hann er frá Cleveland USA. Hann reyndar fær alltaf einhverja aðstoðamenn til að hjálpa sér við plötugerðina en hann sér einn um laga/texta smíðina. Tónlistin hans flokkast undir Industrial-techno-rock en það er mjög erfitt að staðsetja nákvæmlega tónlistina hans þar sem að hann er alltaf að prófa eitthvað nýtt. NIN hefur gefið út 11 plötur og eru þær nefndar Halo one og upp í Halo eleven. "The Downward spiral" var gefin út 1994 og var 4. breiðskífan sem NIN gaf út og er hún sérstök að því leiti að platan í heild sinni segir frá sögu manneskju sem er að kasta lífinu á glæ og endar hún á laginu "Hurt" sem lýsir endalokum hennar. Á TDS var Trent sjálfur að glíma við mikið þunglyndi og einkennist andrúmsloft plötunnar mikið af því. [nánar um sögu TDS og Trent]

Trent Reznor hefur samið tónlist við margar bíómyndir, þ.a.m. Lost Highway, Natural Born Killers, The Crow, Tomb Raider. Núna nýverið þá sá hann um að semja alla tónlist og hljóðumhverfi Doom III en hann er mikill aðdáandi ID gengisins og hafði áður sent inn nokkur lög sem voru notuð í gamla Doom leikinn. [nánar um það]
  • March Of The Pigs: Trent flutti inn og tók upp plötuna í húsinu þar sem Manson morðin voru framin. Hann var sagður hafa skýrt þetta lag eftir morðingjunum, en þeir skrifuðu 'pig' á veggi og hurðir hússins. Massívft rokklag. [sækja]

  • The Downward Spiral: Frábært lag í hægari kantinum, með stuttum ógnvekjandi endi. Frábær opnun inn í loka lag disksins. [sækja]

  • Hurt: Lokalagið á diskinum og er eitt af bestu verkum NIN. [sækja]

Úff, hvað er að gerast. Maður er alveg að kabbna úr kvefi *sniffff* Best að svindla smá og skella sér á eina kókómjólk og fá sér morgun mat með deildinni.. :) Hérna er annars helvíti skemmtileg afþreying ef þið nennið ekki að vinna í dag (eins og ég). [fullorðins grín :)]

7. ágúst 2003

*grátur* Þessi dagur verður minn síðasti... ég er að fara til tannsa... :'( Afhverju var ég að drekka þetta kók og borða nammið, afhverju bustaði ég ekki tennurnar allaf og notaði tannþráð og tannstöngul, munnskol og flúor... *snökt*

6. ágúst 2003

Til hamingju Biggi og Ingibjörg með litla kútinn ykkar (sem fæddist á mánudaginn s.l.) óskum ykkur fjölskyldunni (já núna eru þið orðin það) innilega til hamingju.
Oh já, gleymdi næstum... helvítis rotturnar í Sambíóunum hafa hækkað miðaverðið aftur í 800 kr. Þetta eru helvítis glæpamenn... og þeim finnst skrýtið að fólk skuli stela bíómyndum þegar það getur? Hálfvitar!

Hvet landsmenn til að sækja Eina bíóið á Húsavík heim þar er hlustað á viðskipavinina... [skoða frétt]
Iss.. ekkert skrifað um helgina! Helv, leti er þetta...

*Gasp* í alvöru, förum þangað...Það er ekkert smá svekkelsi að setja upp heimasíðu, ég vill benda fólki sem er í þeim hugleiðingum að halda sig frá því. Þetta eru eintóm vonbrigði og grátur. Þegar fyrsta síðan manns fer í loftið þá líður manni jú, svakalega vel og það er eins og maður svífi um á skýi... lífið er yndislegt. Þér finnst þú vera allt önnur manneskja svo svakalega "in" í dag og "töff". En svo kemstu að því að það sést ekki utan á þér að þú sért kominn með heimasíðu, og að þú ert ekki einstakt lítið snjókorn. Fólk gengur ekki upp að manni á götunni og segir "Hey, þú ert kominn með nýja heimasíðu, er það ekki?" eða "Ég sé að þú ert kominn með heimasíðu!" Iss.. *snökt*, þess vegna hef ég ákveðið að keyra morgunblaðsauglýsingar í hverri viku (byrja á morgun) þar sem ég auglýsi að ég sé kominn með heimasíðu! ...og hananú engin fleiri vonbrigði fyrir mig!

Annars var helgin í góðum málum, ég, Rannsa pannsa og litla systir skemmtum okkur vel á Kópi 2003 (verslunarmannahelgarfagnaður vina R.). Fín helgi í alla staði. :) Nema hvað maður er orðinn slappur í að drekka áfengi, guð minn almáttugur. Held ég verði hreinlega að taka mig á og gerast dagdrykkjumaður til að hressa mig aðeins við í þolinu.

Forðist eins og heitan eldinnÉg og R. fórum í bíó á mánudaginn á Basic, ALMÁTTUGUR!! hvað þetta er léleg mynd. Arfaslappur leikur, lap-þunnt plott (eiginlega ekki hægt að kalla þetta plott) og í alla staði kastað til hendinni við gerð myndarinnar. Ég kenni sjálfum mér um að vera ekki búinn að kynna mér þessa mynd betur. Ég meina við hverju er s.s. að búast frá John McTiernan? Hann er búinn að gera Die Hard!!! Og svo var síðasta mynd hans "Rollerball" ein sú versta í kvikmyndasögunni... Allavegana stay away í guðsbænum..