29. ágúst 2003

Og fólk vogar að segja að skólinn sé ekkert nema sældarlíf...Flutt! og núna er það bara skólinn... fuck! Ég sem ætlaði að vinna upp um helgina það sem ég hef verið að sleppa í síðustu viku (sökum flutningavesens) og þá er bara skellt á okkar hóp huge fyrirlestrar verkefni í málstofunni í næstu viku. Tveir fyrirlestrar um "Dynamic memory in the Kernel" og við eigum að tala um það í 2x40 mín.. guð minn almáttugur. Eins gott að maður er með góðu fólki í hóp. :)

Jæja allavegana búinn að prenta út allt efni sem ég fann um þetta á netinu (>500 síður) og nú er bara að lesa :s. Ekkert vídjó eins og planið gerði ráð fyrir... bara lestur, en jæja, samt lúmskt feginn að klára þennan fyrirlestrarpakka strax meðan að það er ekki of hektískt í skólanum (engin alvöru verkefnavinna hafinn, bara dæmatímar og lestur).

Hérna er einn gamall og góður í nýjum búningi.. sjóorrusta í flash, svona þegar maður verður leiður á að lesa...

28. ágúst 2003

Ég er hálfviti...Ég er svo heimskur! Við erum að klára að flytja í dag, þ.e. í kvöld erum við endanlega flutt heim til mömmu minnar og pabba. Í gær vorum við að ganga frá íbúðinni, þ.e. þrífa og þ.h. Að sjálfsögðu var hluti af því að afþýða ísskápinn. Þar komum við að heimsku gerðum mínum. Málið var að það hafði safnast um sæmilegur klaki í frystiboxið sem þurfti að losna við. Ég hugsaði með mér að best væri að reyna að vinna aðeins á þessu svo þetta myndi nú þiðna á innan við viku. Það tókst ekki betur en svo að mér tókst að gera gat á kælielementið í skápnum og fékk allt freonið úr skápnum frussandi framan í mig! Þvílíkur dumbass!! Ég hringdi náttúrulega í dauðans ofboði í einhverja viðgerðarkalla (lenti reyndar á helvíti fínum gaur sem róaði mig niður og fullvissaði um að ég myndi ekki deyja af freoni). En eins og allt annað sem kemur fyrir mig þá krefst þetta þess að ég drusla risa-ísskáp niður af 3ju hæð og í viðgerð í kópavoginum útaf gati sem er minna en títiprjónshaus!! Ég er svo mikill hálfviti! Annars var þessi dagur allur svona (og reyndar öll vikan), tölvan klikkaði í skólanum, eyðilagði ísskápinn, stíflaði posann í húsasmíðjunni og tókst að rekast í allt!

Sorglegasta við daginn í gær var að ég hef ekki fundið neinn sem vill taka við litlu músunum okkar og neyddist því til að finna dýrabúð sem gæti tekið við þeim fyrir mig. :'( Öðlingurinn sem er með furðudýr og fylgifiska í kópavoginum aumkaði sér yfir mér og tók þær í fóstur fyrir mig. Skemmtileg dýrabúð sem staðsett er í breyttum bílskúr, mæli með að þið dýravinir kíkið þangað (leiðbeiningarnar eru á vefnum þeirra).

25. ágúst 2003

Algjör lifesaver fyrir menn með kröfuharðar internet konurKominn tími til að tengjast! Jæja ég fór loksins í að laga heimilistölvuna og undirbúa hana fyrir flutningin heim. Þurfti að útbúa lítið LAN til að hægt væri að samnýta sömu ADSL tenginguna fyrir allar tölvurnar heima. Að sjálfsögðu þá er manni gert erfitt fyrir með því að vinnan ákvað að nota einhvern helvítis (meingallaðan) Cisco VPN hugbúnað til að sjá um dulkóðun á sendingum. En þá virkar ICS (internet connection sharing) í windows ekki! Djöfull!

En gamla góða WinGate kemur til bjargar. Ég hafði prófað eldri útgáfu af þessu forriti (fyrir um 2 árum síðan) og reyndist hún ágætlega en ICS virkaði þá fyrir mig þannig að ég lét það vera. Ég setti upp núna útgáfu 5.0.7 af Wingate og viti menn allt virkaði eins og í sögu, allar tölvur tengdar á netinu og í gegnum sömu tenginguna.. happy, happy, happy. (Bara að lesa yfir install instructions áður en forritið er sett upp og þá virkar allt). Hérna (message 5/11) eru leiðbeiningar um hvernig eigi að fá clientana til að tengjast.

Kalli, tjekkit át! ;)

21. ágúst 2003

Ef Rannveig fengi að ráða...Jæja, þá er loksins (því miður) komið að því að við skötuhjúin flytjum af Njálsgötunni og heim í heiðardalinn. Flytja aftur heim í fangið á gömlu hjónunum í Rjúpufellinu á meðan að við klárum námið okkar. Fuck hvað gamla herbergið mitt er "orðið" lítið (kenni að sjálfssögðu bumbunni um hve mikið herbergið hefur minnkað).

Já, þetta hefur hangið yfir okkur síðan við fluttum hingað í 101 fyrir tæpum 2 árum síðan (úff.. þvílíkur tími) og núna er komið að því. Maður verður bara að yfirgefa pleisið! Ég meina, hver hefur efni á því að vera í fullu námi (+lokaverkefni) og leigja á 60-70 þús á mánuði. Iss bara rugl ef einhver spyr mig. Því verðum við að fá að flýja aftur heim í oggupínulitla 12 fermetra, en þetta verður fínt :) (spyrjið bara Sollu hún hefur reynsluna). Það sorglegasta við þetta allt saman er að litlu mýslurnar okkar (Bolla og Adda) geta ekki flutt með okkur í "kústaskápinn". :'(

Athugið: Auglýst er eftir góðu heimili fyrir tvær sætar (soon to be) heimilislausar mýslur (ein svört og hin hvít). Af afspurn segjast þær báðar vera "mjög góðar og þægilegar í umgengni". Er enginn hjartgóður músaunnandi þarna úti sem getur veitt þessum hnoðrum hlýjan stað, ást og umhyggju? [myndir af mýslum]

18. ágúst 2003

Tókum ekki eftir þessu skilti er við komum á staðinn.. >(Helvítis andskoti !!!! Ég veiddi ekki nokkurn skapaðan hlut í veiðiferðinni góðu. Við komum austur í ágætis veðri um klukkan 2 á föstudaginn og hentum draslinu inn í hús og drifum okkur út að veiða. Lítið vissum við að þetta yrði síðustu þurru klukkustundirnar sem við myndum eiga þarna. Ekkert var veitt á föstudaginn, en við kipptum okkur nú ekki mikið upp við það og vöknuðum eldhress á laugardagsmorgun. Okkar beið þá hin þokkalegasta rigning og slagveður en það dró ekki úr manni kraftinn og við veiddum alveg frá 8 - 13 þann daginn, án þess að verða svo mikið sem var við nokkurn skapaðan hlut.
Eftir hádegi þá veiddi Stefán einhvern smá titt (sem ég held að hann hafi ekki fengið einu sinni á stöngina heldur synti fiskurinn í sjálfsvígshug beint upp í fjöru og oní töskuna hans Stebba), en maður sjálfur ekkert, EKKERT. Enda hellti maður í sig rauðvíninu og bjórnum um kvöldið, til að lina þjáningarnar. Á sunnudaginn þá urðum við aðeins varir við algjöra smá titti (bleikju putta) en þeim var sleppt um leið (grunar að ég hafi hreinlega veitt sama tittinn tvisvar ;) )...

Annars var þetta ágætis veiðiferð en á næsta ári verður farið seinna og einhvert annað (og engu plássi í töskunum sóað í stuttbuxur og svoleiðis vitleysu)...

15. ágúst 2003

Jæja þá er loksins komið að því! Maður er á leiðinni í (fyrstu og sennilega síðustu) alvöru veiði sumarsins, VÚHúúúú... :) Ætla að skella mér ásamt nokkru góðu fólki að veiða í Tungufljóti (austan við Vík í Mýrdal) en þangað hef ég ekki komið áður.

Er kominn með allar græjur (þó ekki vöðlur, en oh well gömlu góðu stígvélin verða bara að duga). Tek með mér myndavélina og ekki er þessi veiðiferð slæmt myndefni fyrir fyrsta myndaalbúmið á þessari síðu :D. Annars er best að ég stilli vélina í panorama stillingu (svona svo ég nái þeim stóra örugglega öllum í mynd... hehehe). Later dúds..

13. ágúst 2003

Kærastan hans Braga?Næst síðasti vinnudagurin fyrir frí/skóla. Jæja hlaut að koma að því, en hvað varð um sumarið? Mér finnst eins og ég hafi ekki getað gert nema brot af því sem ég ætlaði mér :s Oh, well það kemur sumar eftir þetta sumar og vetur eftir þennan vetur...

Bragi gamli durgur minnti mig á þennan líka snilldar remix disk sem ég átti af NIN disknum sem ég talaði um í síðustu viku. "Further Down The Spiral", bara snilld. Ég smelli inn nokkrum lögum af disknum hérna fyrir ykkur til að njóta.
  • Piggy (Nothing Can Stop Me Now): snilldar hardcore remix af orginal laginu (sem var í rólegari kantinum). Án efa bezta lag plötunnar.[sækja]

  • At The Heart Of It All: frábært instrumental mix af gömlu og góðu Apex Twin lagi. Frábært [sækja]

  • Self Destruction, Final: Geðsýkislegur endir á góðum diski. Ef það er eitthvað lag sem maður á að hlusta á í vondu skapi ;) [sækja]
Enn einn vinnudagurinn að enda og ég nenni ekki heim... hvað ætli maður myndi gera ef maður vissi að maður myndi deyja á morgun?

12. ágúst 2003

Nihon-jin desu (ég er japanskur)"Kon'nichi wa"! Jæja nú er komið að því, húsið heima er fullt af japönum og ég er á leiðinni í mat að hitta þá. Sagan er að systir mín var skiptinemi í Japan fyrir 2 árum síðan og í ár ákváðu systur hennar (þessar japönsku) að koma í heimsókn til Íslands. Þær eru þrjár og gista heima hjá gömlu hjónunum í Rjúpufellinu (við lánuðum þeim nýja rúmið sem við R.vorum að kaupa).

Alla vegana þá vorum við hjónakornin boðin í mat í kvöld í ramm-íslenzka ýsu og soðnar kartöflur úr þykkvabænum (bjakk..). Ég hef því verið að skerpa aðeins "internatíónalinn" í mér í dag og æfa nokkrar góðar japanskar setningar. Hehe, maður er meira að segja kominn með þá fyrstu:
"Kon'nichi wa! Watashi wa Sverrir desu. Hajimemashte."
Þetta þýðir "Halló! Ég heiti Sverrir. Gaman að hitta þig." Ég er viss um að ég á eftir að slá í gegn, for shure :). Það er nefninlega orðið frægt hvernig ég sló rækilega í gegn um árið þegar ég reyndi að hringja í systur mína meðan hún var úti í Japan. Þá, eins og nú, var ég einmitt búinn að æfa stíft "Halló! Gæti ég fengið að tala við Eyrúnu." á japönsku. Símtalið gekk að óskum og ég fór með mína rullu, ég var ekki fyrr búinn að sleppa síðasta orðinu þegar viðmælandi minn (sem var ein systranna og að sjálfsögðu japönsk í húð og hár) missti sig alveg og blaðraði helling á japönsku við mig. Guð minn almáttugur eftir að ég hafði (eins og biluð plata) endurtekið japönsku-rulluna nokkrum sinnum til viðbótar og hún hafði spjallað við mig (um god-kows-what) í svona 5 mínútur þá neyddist ég bara til að ropa upp úr mér "Can i speak to Eyrún" þar sem ég vissi ekkert hvort ég væri í raun að tala japönsku eða ekki (hafði þennan texta kannski ekki alveg á hreinu?).

Alla vegana þá fer ég fullur bjartsýni í mat heim í kvöld. :)

11. ágúst 2003

Kallinn bara í beinni :)Hoho.. vefmyndavélar eru fyndnar :P. Kíkið á kallinn í beinni

Annars var eitthvað lítið gert um helgina, var reyndar plataður í Hinsegin daga gönguna. Uss hvað maður þurfti þar að nota alla 1300 mm vatnsvörnina á regnjakkanum sínum (ekki satt Karen ;) )... Þetta var annars fínt, þó svo að þeir hefðu eflaust geta fundið betri skemmtiatriði (eða kannski er drag ekki mitt thing) "Ég er svo Gay!". Við hjúin erum farin að pakka niður, eða réttara sagt Rannveig er byrjuð, ég er bara letihaugur. Úff bara 4 dagar eftir í vinnunni og svo sumarfrí :D :D

8. ágúst 2003


Aflakóngarnir

Hohoho.. ef þetta er ekki sniðugasta myndin frá kópi 2003 þá veit ég ekki hvað :D :D. Örvar compjúter-nörd tók þessar myndir og því miður þá voru einhver leiðindi með myndavélina þannig að allar myndirnar urðu hálf óskýrar. En maður fær fótósjoppið til að redda þessu ;) ... annars held ég að Rannveig sé með minnsta fiskinn þarna á myndinni (hehe ég veiddi einn og það varð að stilla myndavélinni í widescreen til að ná mynd af honum öllum í einu)
Plötuumslag The Downward SpiralÍ morgun þá tók ég með mér gamla góða Nine Inch Nails diskinn minn "The Downward Spiral" í vinnuna þar sem ég ætlaði mér að bjarga honum (orðinn soldið rispaður) frá glötun og afrita hann áður en hann myndi hætta að spilast. Ég fattaði þá aftur eftir langan tíma hvað þetta er góður diskur. Því langaði mig að deila honum með ykkur í dag.

Nine Inch Nails eða NIN er í raun eins manns hljómsveitin hans Trent Reznor, en hann er frá Cleveland USA. Hann reyndar fær alltaf einhverja aðstoðamenn til að hjálpa sér við plötugerðina en hann sér einn um laga/texta smíðina. Tónlistin hans flokkast undir Industrial-techno-rock en það er mjög erfitt að staðsetja nákvæmlega tónlistina hans þar sem að hann er alltaf að prófa eitthvað nýtt. NIN hefur gefið út 11 plötur og eru þær nefndar Halo one og upp í Halo eleven. "The Downward spiral" var gefin út 1994 og var 4. breiðskífan sem NIN gaf út og er hún sérstök að því leiti að platan í heild sinni segir frá sögu manneskju sem er að kasta lífinu á glæ og endar hún á laginu "Hurt" sem lýsir endalokum hennar. Á TDS var Trent sjálfur að glíma við mikið þunglyndi og einkennist andrúmsloft plötunnar mikið af því. [nánar um sögu TDS og Trent]

Trent Reznor hefur samið tónlist við margar bíómyndir, þ.a.m. Lost Highway, Natural Born Killers, The Crow, Tomb Raider. Núna nýverið þá sá hann um að semja alla tónlist og hljóðumhverfi Doom III en hann er mikill aðdáandi ID gengisins og hafði áður sent inn nokkur lög sem voru notuð í gamla Doom leikinn. [nánar um það]
  • March Of The Pigs: Trent flutti inn og tók upp plötuna í húsinu þar sem Manson morðin voru framin. Hann var sagður hafa skýrt þetta lag eftir morðingjunum, en þeir skrifuðu 'pig' á veggi og hurðir hússins. Massívft rokklag. [sækja]

  • The Downward Spiral: Frábært lag í hægari kantinum, með stuttum ógnvekjandi endi. Frábær opnun inn í loka lag disksins. [sækja]

  • Hurt: Lokalagið á diskinum og er eitt af bestu verkum NIN. [sækja]

Úff, hvað er að gerast. Maður er alveg að kabbna úr kvefi *sniffff* Best að svindla smá og skella sér á eina kókómjólk og fá sér morgun mat með deildinni.. :) Hérna er annars helvíti skemmtileg afþreying ef þið nennið ekki að vinna í dag (eins og ég). [fullorðins grín :)]

7. ágúst 2003

*grátur* Þessi dagur verður minn síðasti... ég er að fara til tannsa... :'( Afhverju var ég að drekka þetta kók og borða nammið, afhverju bustaði ég ekki tennurnar allaf og notaði tannþráð og tannstöngul, munnskol og flúor... *snökt*

6. ágúst 2003

Til hamingju Biggi og Ingibjörg með litla kútinn ykkar (sem fæddist á mánudaginn s.l.) óskum ykkur fjölskyldunni (já núna eru þið orðin það) innilega til hamingju.
Oh já, gleymdi næstum... helvítis rotturnar í Sambíóunum hafa hækkað miðaverðið aftur í 800 kr. Þetta eru helvítis glæpamenn... og þeim finnst skrýtið að fólk skuli stela bíómyndum þegar það getur? Hálfvitar!

Hvet landsmenn til að sækja Eina bíóið á Húsavík heim þar er hlustað á viðskipavinina... [skoða frétt]
Iss.. ekkert skrifað um helgina! Helv, leti er þetta...

*Gasp* í alvöru, förum þangað...Það er ekkert smá svekkelsi að setja upp heimasíðu, ég vill benda fólki sem er í þeim hugleiðingum að halda sig frá því. Þetta eru eintóm vonbrigði og grátur. Þegar fyrsta síðan manns fer í loftið þá líður manni jú, svakalega vel og það er eins og maður svífi um á skýi... lífið er yndislegt. Þér finnst þú vera allt önnur manneskja svo svakalega "in" í dag og "töff". En svo kemstu að því að það sést ekki utan á þér að þú sért kominn með heimasíðu, og að þú ert ekki einstakt lítið snjókorn. Fólk gengur ekki upp að manni á götunni og segir "Hey, þú ert kominn með nýja heimasíðu, er það ekki?" eða "Ég sé að þú ert kominn með heimasíðu!" Iss.. *snökt*, þess vegna hef ég ákveðið að keyra morgunblaðsauglýsingar í hverri viku (byrja á morgun) þar sem ég auglýsi að ég sé kominn með heimasíðu! ...og hananú engin fleiri vonbrigði fyrir mig!

Annars var helgin í góðum málum, ég, Rannsa pannsa og litla systir skemmtum okkur vel á Kópi 2003 (verslunarmannahelgarfagnaður vina R.). Fín helgi í alla staði. :) Nema hvað maður er orðinn slappur í að drekka áfengi, guð minn almáttugur. Held ég verði hreinlega að taka mig á og gerast dagdrykkjumaður til að hressa mig aðeins við í þolinu.

Forðist eins og heitan eldinnÉg og R. fórum í bíó á mánudaginn á Basic, ALMÁTTUGUR!! hvað þetta er léleg mynd. Arfaslappur leikur, lap-þunnt plott (eiginlega ekki hægt að kalla þetta plott) og í alla staði kastað til hendinni við gerð myndarinnar. Ég kenni sjálfum mér um að vera ekki búinn að kynna mér þessa mynd betur. Ég meina við hverju er s.s. að búast frá John McTiernan? Hann er búinn að gera Die Hard!!! Og svo var síðasta mynd hans "Rollerball" ein sú versta í kvikmyndasögunni... Allavegana stay away í guðsbænum..