30. nóvember 2003

Dooooit baby.. oh yeah  drill, drill, drill, drill, drill....ALDREI SKAL ÉG TALA ILLA UM ÍTALSKT EURO AFTUR, ALDREI, ALDREI... guð minn almáttugur tékkiði á gellunum í þessu myndbandi.. svona eiga tónlistarmyndbönd að vera.. þetta er ALVÖRU.. doo it Benny !!!.. hristar skinkur.. :D

PowerTools + Hot Chicks = I LOVE IT...


24. nóvember 2003

Ljúúúúft... svona skal þetta verða...Síðasta prófið í dag (forritunarmál) vúúúhúúú.. og það er kominn snjór.. Þvílíkt jólalegt úti... Við (HR pakkið) tókum okkur VR bústað á leigu (hjá henni Þórunni elschu..) í Miðhúsaskógi og djöfull verður drukkið í kvöld.. hehehe.. forkælast í pottinum með snjóhrúgu á hausnum :D :D.. getur lífið verið betra.. þessi önn er núna einungis nokkra klukkutíma frá því að klárast.. og maður getur andað örlítið rólegar...

Bottoms up.. :D

20. nóvember 2003

Og verðlaunin í ár fara til....Greyjið kallinn, haldiði að hann Micael Hanscom hafi ekki verið rekinn úr vinnunni sinni hjá Microsoft fyrir að halda úti blogg síðunni sinni. Hann vann í einhverri prentsmiðju hjá þeim og asnaðist til að taka myndir af staðnum og segja eitthvað aðeins of mikið á blogginu sínu.. og ekki að spyrja að því... *boot* beint á götuna.. hehehe.. dumb-ass.. Getið lesið meira um þetta hérna og hérna er svo síðan hans.. fín lesning um hvernig eigi að koma í veg fyrir að maður sé rekinn vegna bloggins síns ;)

Annars er maður bara rúmlega hálfnaður 2/3 í prófum... ekki búið að ganga nógu vel.. :( en jæja vonandi engar endurtektir...

Oh my god.. þetta er geðveikur diskur, svo er hann líka svo fallegur við hliðina á FOTR í hillunni :DÉg skellti mér á Extended útgáfuna af LOTR:TTT á þriðjudaginn.. var bara að klára að horfa á diskinn (já allt aukaefnið líka) og fucking hell.. þetta er óneitanlega flottasta dvd safn sem hefur verið gefið út. Þeir gjörsamlega náðu að toppa FOTR extended útgáfuna með þessum snilldar disk.. algjört must fyrir alla.. :D :D

*love it*

16. nóvember 2003

Blahhhh.. nennessekki...Úff.. einn af þessum dögunum, nenni hreinlega ekki að gera nokkurn skapaðan hlut, á að vera að læra stærðfræði en.. ég nenni því ekki.. jezzzz.... Eftir viku og einn dag þá er þessi önn búin (fyrir utan aðventunámskeiðið, sem ég er að vonast til að verði easy-peasy)... trúi þessu ekki djöfull er þetta fljótt að líða.. finnst eins og ég hafi bara verið að byrja um daginn...

Fattaði það í morgun að ég hef ekki mætt í vinnuna í næstum 2 mánuði.. fuck, ætli maður sé ekki bara rekinn.?!?.. Tja læt þá ekki svoleiðis smáatriði stoppa mig í að mæta í jólaglöggið í desember og að sjálfsögðu hið víðfræga jólaHLAÐborð tölvudeildarinnar.. ;) Júhhhhúúú! ég ætla að vera fffuuuuuuuuuuulllur... Demit, best að halda áfram að heilda/deilda eða hvað það sem ég er nú annars að gera ;)..

p.s. Legg til að Karl Hreiðarsson verði með upphitunarpartí fyrir vefdeildina í ár! ... ég mæti með Bubba :D

15. nóvember 2003

Letingi og ekki sáttur við það...Afhverju byrjaði ég ekki að læra fyrr, afhverju vakti ég svona seint í nótt, afhverju, afhverju...??? Jæja maður bara kominn á "fullt" í próflestur og ekki seinna vænna þar sem að stærðfræðiprófið er á þriðjudaginn, shit shit shit... Gotta'go...

13. nóvember 2003

Hvernig mun þetta eiginlega enda hjá okkur? Bragi sendi mér snilldar lýsingu á stöðunni í heimsmálunum í dag og hvernig þetta muni hugsanlega örugglega enda... Tjékkit
Yeah.. þegar maður loksins eygir í markið þá færa þeir það fyrir aftan mann og maður þarf að hlaupa annan hring..Jæja, loksins lauk síðasta skilaverkefninu. :) Núna erum við Árni stoltir höfundar bezta (já ég segi besta) multiplayer 3D shooter sögunnar.... hehehe... smíða smá skýrslu og þessu er lokið. Eða þannig!!! Núna eru bara 4 dagar í fyrsta prófið og ég hef ekki lært staf!! Guð minn almáttugur, stefnir í óefni.. en jæja.. þetta hefst vonandi.

Svo verður dottið í það... hehehe.. ekki satt?

10. nóvember 2003

"C makes it easy to shoot yourself in the foot; C++ makes it harder, but when you do it blows your whole leg off." - Bjarne Stroustrup

... bara langaði að koma þessu á framfæri.
Sweeeet.....Ó nei!!! Grimma líf,

"The Lord of the Rings: The Two Towers Extended Version - Release date: 18 November, 2003."

Sama dag og ég byrja í prófum, demit, demit, demit... >(

Kaupa kaupa....

8. nóvember 2003

Open your eyesssss.....Iss.. ágætis sönnun á því hvað fólk getur verið miklir hálfvitar, (leimmér að umorða þetta..) bandaríkjamenn ERU hálfvitar....

Bandaríska kvikmyndin "Titanic" var valin versta kvikmynd allra tíma hjá áhorfendum sjónvarpsþáttar hjá BBC. Fjölmargar frægar kvikmyndir eru á listanum, svo sem "Pearl Harbor", "Artificial Intelligence og "Battlefield Earth". Nánar

Ég meina hver kaus Vanilla Sky inn á þennan lista.. heimskt lið... snilldar mynd .!!

*Open your eyes....*
Kóngurinn.. David er kóngurinn!!!David Attenborough kom til landsins í vikunni og hélt fyrirlestur á vegum endurmenntunastofnun Háskólans. Helvítin á þeim ég var búinn að tala við þá í október og spyrja þá út í þetta og þeir sögðust ætla að halda þetta í háskólabíó (sem hefði verið eina vitið í) en nei svo héldu þeir þetta í minnsta sal landsins í kópavogi !! Djöfulsins helvítis djöfull.. ég er brjálaður komst ekki að hitta formanninn, meistarann, Davíð kóng... var vísað frá vegna þess að húsið var fullt... fór næstum að gráta.. :(

Því ætlaði ég nú ekki að missa af áritununni sem kallinn var með í kringlunni í gær, dreif mig rúmlega hálftíma fyrir (reyndar aðeins og seinn) en samt var ekki það mikil röð kominn þá... en fuck hvað hún varð löng á endanum... hún náði allaleið innan úr Eymundson búðinni og framhjá Íslandsbanka útibúinu.... hehehe..

En þvílík snilld að hitta þennan mann, frábært... maður varð hreinlega að halda í sér svo manni myndi ekki bresta röddin.. ;) Hann áritaði fyrir mig dvd safnið sem ég keypti fyrir stuttu og svo skellti ég mér á bókina hans og fékk hann til að hripa í hana fyrir mig líka... gæti ekki verið meira hamingjusamur... :D :D

6. nóvember 2003

Ég bara verð... how gay is this guy.. ?
Viggi að pæla í enni!!

... oh jæja maður ætti kannski ekki að vera að gera grín, hann Viggi var nebblinega að pæla í henni því "Það þarf að pæla dálítið í henni en þannig eru allar góðar myndir."... hohoho *rofl* Full story er hérna... Held að Viggi sé að taka við sem HR módelið... (Sumir sálarvinir abbó?)

4. nóvember 2003

Alltaf styttist í síðustu matrix myndina:


...eða verður þessi sú síðasta ??? ;)


Allavegana ætla ég að taka mér frí og kíkja á hana... einhverjir aðrir?
Snjór í glugga... núna verður gaman :)Gleðilegan snjó !!!
Jæja þá er fyrsti alvöru snjódagur vetrarins orðinn að veruleika... get ekki annað sagt að ég sé lúmskt ánægður með það. Alltaf fallegt þegar það er kominn snjór :) Svo þýðir það líka að farið er að styttast í jólinn og þessari önn fari að ljúka... ahhh.. sweet.

Jæja, best að koma sér aftur að verki (skrópaði í morgun í skólann).. *roðn* verð að vinda mér í að klára síðasta Málstofu verkefnið... muniði að brosa... *bros*

2. nóvember 2003

Svalasti gaurinn í bænum.. djíses...Fór niðrí bæ í gærkveldi eftir að hafa hitt OfurNjarðar liðið í framsóknarhúsinu í kópavogi, helvítis stuð... Allir með sömu nörda brandarana og einhver gaur sem drakk bjór ógeðslega hægt (who was that guy anyway? ;) )... Allavegana þá lét ég mig sjást niðrí miðbæ í gær með Styrmi "Matrix" og ég get ekki annað en spurt, hvað er með útganginn á þessu pakki í dag (ekki Styrmi, hann var kúl as hell.. hohoho)?

Síðan hvenær komst eitthvert Redneck Trucker look í tísku? Fucking kræst þetta var eins og að labba inn í pöbb sem myndi sæma sér vel í Deliverance. Umkringdur einhverjum vannabí aumingjum, hvað er það? Er kúl/inn að vera aumingi í dag? Hvernig væri nú að taka til í þjóðfélaginu ef ungafólkinu finnst flott að vera aumingi? Lógum fyllibyttunum á hlemm og reynum að koma smá sens inn í hausinn á þessu pakki... nei núna er ég hættur!!