Þá er það komið á hreint!... Langar bara að óska honum Braga til hamingju með stórsigurinn í World Idol keppninni þar sem að landi hans Kurt (frá Noregi) vann keppnina með yfirburðum... enda líka besti söngvarinn í keppninni (ég meina hverjir kjósa ekki hobbitann yfir hrokagæruna anyday?).
Djöfull var gaman að sjá hve Ameríska Idolið varð fúl í hvert skipti sem Kurt fékk hærri stig en hún (og það gerðist í 10 skipti af 11) hehehe... Litla svarta krækiberjahjartað mitt tók illkvittnislega kippi í hvert skipti >)...
Djöfull var áramótaskaupið LÉLEGT... algjört sorp, sorpití sorp... Jæja, best að sprengja meira og fá sér nokkur glös.. :D eigiði gott gamlárskvöld...

Feitur og fínn eftir jólin, bara orðinn bolla :). Fékk helling af pökkum ólíkt honum Jónasi kallinnum, svona er þetta að halda jólin í sveitinni... færð ekkert nema bara eitthvað dót úr kaufffélaginu... (*bros*)
Þessi blogfærsla er til stór-vinar míns hans Jónasar... maðurinn bak við Genngengge gegenne egegegege lagið... 
Í öllu þessu jólaamstri þá gleymum við alveg heilum þjóðflokki... Jólasveinunum! Englendingarnir hugsa hinsvegar til þeirra og löngu vinnudagana... 
Shjett... Ingó í danmörku maður sem ég hef ekki séð í áraraðir (þykist vera betri en ég) er víst með
Uss.. hvað á maður að gera? Bara fyrsta helgarfríið manns í langan tíma, hef ekkert að gera fyrir skólann og get ekkert gert í vinnunni þar sem mér var sparkað út fyrir nýja gaurinn.. (greinilega vilja ekki hafa mig í vinnu þarna hjá VÍS). Þannig að ég hef bara verið að slæpast í dag, horfa á vídjó og hanga á internetinu... lífið er ljúft :D
Bara til að minna fólk á í framhaldi af
ALDREI SKAL ÉG TALA ILLA UM ÍTALSKT EURO AFTUR, ALDREI, ALDREI... guð minn almáttugur tékkiði á gellunum í
Síðasta prófið í dag (forritunarmál) vúúúhúúú.. og það er kominn snjór.. Þvílíkt jólalegt úti... Við (HR pakkið) tókum okkur VR bústað á leigu (hjá henni Þórunni elschu..) í Miðhúsaskógi og djöfull verður drukkið í kvöld.. hehehe.. forkælast í pottinum með snjóhrúgu á hausnum :D :D.. getur lífið verið betra.. þessi önn er núna einungis nokkra klukkutíma frá því að klárast.. og maður getur andað örlítið rólegar...