bwahahahahha
Hvað er að gerast? Maður bara svo svakalega bissí og enginn tími fyrir alnetið! :)
Ekkert að gerast... tjellingin fer til Danmerkurinnar í næstu viku, oh well best að fá þá lánaða fallbyssu til að vekja mig á morgnanna. Alltaf, um leið og Rannveig er ekki heima þá asnast ég til að vaka frameftir allri nóttu að gera ekki neitt í tölvunni... hvað er málið? Er ég sá eini sem er þjakaður af þessari Maka-vöku?
Linux.. taka 2..
Jæja... heim að baka fyrir afmæli konunnar á morgun. 25 ára "oldie"... maður er nú bara farin að hugleiða upgrade? :)
Af slashdot í morgun:
Ó nei.. þetta er alltof fyndið...
.. eða eins og Justininn orðar það svo smoothlý sjálfur..."wardrobe malfunction"... nánar á CNN og á mbl (fyrir þá sem kunna ekki ensku). Hérna er vídjó klippa (2MB) af þessu óborganlega atriði.


Mikið að gerast í dag. Ég er skráður í námskeiðið Upplýsinga og samskiptatækni í skólakerfinu þar sem að við erum að skoða nýtingu tölvutækninnar í framhaldsskólum á Íslandi. Við erum að vinna verkefnin núna þar sem við eigum að kanna hvernig nemendur nota tölvur í tímum, til þess þá fengum við að fara í tíma í MK í morgun (í dönsku úfff...) til að fylgjast með.
. Hvað er í gangi krakkar? Þetta var eins og atriði í Twilight Zone.. comm'on people...
Jæja við erum kominn í aðstöðuna okkar niðrí VÍS og lokaverkefnið er hafið af fullu. Aðstaðan er kominn upp og forrit instölluð, erum reyndar að bíða eftir .NET en það kemur vonandi innan tíðar.

Jæja kids, ef það er einhvern tíman ástæða fyrir því að uppfæra vírusvörnina (setja inn vírusvörn ef engin er á vélinni) og alvarlega hugsa um að setja upp eldvegg á vélina (eða virkja XP eldvegginn) þá er sá tími núna. Þessi skíta W32.Novarg.A@mm/Mydoom ormur er að gera allt vitlaust og mun gera allt vitlaust þegar hann fer í gang 1. feb.
![]() Fyndin mynd um ítölskuþjóðarsálina :) | ![]() Hver hefur ekki gaman af íþróttum? |
Við skulum bjóða OpenSource heiminn velkominn á síðuna mína. Húrra húrra. Loksins tók ég mig saman í andlitinu og drullaðist til að gera þessa síðu almennilega compatable við eitthvað annað en bara fucking IE. Núna virkar hún frábærlega í einum bezta browser í heimi Firebird (og það þýðir að hún virki í þeim öllum).
"Ungt fólk á Íslandi neytir sykurs og gosdrykkja í óhófi en fiskneysla í hópi þess fer minnkandi að því er fram kemur í nýrri skýrslu Manneldisráðs ... strákar á aldrinum 15-19 ára drekka að meðaltali tæpan lítra af gosdrykkjum á dag. Sykurneysla þeirra er jafnframt meiri en góðu hófi gegnir, eða um 143 grömm af viðbættum sykri á dag. Stúlkur á sama aldri drekka minna af gosi, en þess í stað drekka þær meira af vatni og sódavatni. Um 20% stúlkna í rannsókninni sögðust aldrei drekka sykrað gos..." Nánar
Andlát heilbrigðrar skynsemi