11. maí 2004

Lokasýning - Útboðskerfi VÍS
Mánudaginn 17. maí
kl: 11:30 - 12:10
Stofu 231b (önnur hæð til hægri)
Eitthvað smá til að koma manni í góða skapið á þessum fína þriðjudegi.
For the birds snilldar stuttmynd frá Pixar (er í svcd þannig að þið spilið það þá í dvd enabled spilara, t.d. PowerDVD).


Ég elska atriðið þar sem litlu fuglarnir hrúgast saman og eru að tala illa um hinn... to die for.. :D

10. maí 2004

Smá til að hressa andann... sumarið er tíminn :)

8. maí 2004

Undanfarinn mánuð hef ég verið að endurnýja kynni mín af Radiohead, gömlum kunningjum. Það er frábært að komast að því að maður hefur lumað á, algjörlega óafvitandi, þvílíkum tónlistar fjársjóði eins og Radiohead er... Sérstaklega hef ég hlustað á upptökuplötuna "I Might Be Wrong" sem var tekin upp á tónleikaferðalagi þeirra 2001 til að fylgja eftir Kid A og Amnesiac. Þessir tónleikar eru hreint út sagt frábærir!

Ég verð bara að segja að þrjúlög standa lang mest uppúr á þessum reyndar endasleppta diski, "Like Spinning Plates" sem er í frábærri píanó útsetningu og maður fær hreinlega gæsahúð af að hlusta á, Thom Yorke er snillingur og rokkaðasta lag disksins "Idioteque" þar sem 10.000 manns syngja eins hátt og þau geta með og ég hef þurft að halda aftur af mér til að standa ekki upp og taka líka með hástöfum undir hérna á skrifstofunni. Að lokum tekur hljómsveitinn eitt af betri lögunum af Kid A, "Everything in its Right Place". Lagið er ólýsanlegt, frábært lag, sjálfur setti ég það á repeat í heilan dag... réði ekki við mig.

Þið getið sótt þessi þrjú lögum sem ég minntist á með því að smella á nöfnin þeirra hérna að ofan, og fyrir þá sem hafa feita tengingu þá ætla ég að bjóða ykkur upp á, í nokkra daga, að sækja plötuna hérna >50MB (en ekki segja neinum)

Hérna eru nokkur góð review af þessum disk:
http://www.pitchforkmedia.com
http://www.amazon.com

p.s. ef ykkur langar (eins og mig) að syngja með kíkiði á textana hérna... miklu skemmtilegra en segja bara hmm bababa lamabandaba

6. maí 2004

Ég er sannfærðari en nokkurn tíman áður að það eru einungis litlar kellingar sem spila fótbolta. Æi tapaðirðu, litli kútur mamma getur kannski kysst á báttið og gefið þér heitt kakó... grow up og reyndu að taka þessu eins og maður. Hve oft hefur Kristinn ekki runnið niður brekkuna á rassgatinu og hefur hann einhverntíman grenjað í sjónvarpinu?

29. apríl 2004

Hver man ekki eftir LIMAHL... hehehe... AHAHAHAHAH... snillingur..

Heimasíðan


Við óskum honum góðs gengis á "Die Grosse Chance"... vonum að Haddaway og Coolio geri í buxurnar... áfram Limahl...

...svona sjónvarpsefni.. gert úr gulli :D

Og einn fyrir dömurnar, núna er bara að hita upp prentarann og skella þessu á pappír og upp á vegg...
Pop-GOÐIÐ

Edit: vorum að frétta að vesalings Limahl komst ekki lengra en í 8. sæti... oh well it was a good run... hann á þó ennþá Gullna Hammer Smurfinn.. síðan um árið... we STILL got your dignity....

24. apríl 2004

Hahaha.. versta mótel nafn sögunnar...

23. apríl 2004

Gleðilegt sumar... lítið að gerast hjá feita-strákinum þessa dagana. Er að klára lokafasa BS-verkefnisins (á allof stuttum tíma) sem er eins og að ætla að skrautmála postulínsdisk á sama tíma og þú hangir hálfur útum lestarglugga á 300 Km hraða... Sjett... :) s.s. mikið af því sama, lítið af nýju.. nema hvað að ég gerð mitt fyrsta ASP.NET server control *jibbí*.. en það er of nördalegt til að hafa eftir héna.. :)

Merkisdagur í gær, fyrir utan það að hafa verið sumardagurinn fyrsti, því þá var í fyrsta skipti (sem ég veit um) brotinn (boken) línkur (link) á (on) google.. uss.. núna er ástandið orðið alvarlegt !!!

21. apríl 2004

Núna get ég ekki beðið eftir að sjá eina af verstu myndunum á imdb... "You got served", áhuginn vaknaði strax eftir að hafa lesið þetta review frá óheppnum miðakaupa á imdb..

Date: 20 February 2004
Summary: May I borrow your pen?

Innocently I sat, waiting for the previews to finish and the movie to start, not knowing the previews were by far the best entertainment of the evening. Once the lights dimmed, it didn't take long to realize I'd wasted my money. Not only did I waste it, I did it in what is arguably the most painful of fashions. I would have been better off if I'd paid the same amount of money to let a pack of rabid wolves gnaw my limbs off - at least the agony would have ended sooner. If my date hadn't been committed to seeing the thing through (`we paid for it, we may as well see it') I would have walked out, but no.. The things we do for those that we for love.

At one point I wanted to take a ball point pen and jam it into my eyeball, then pound it as deep into my skull as it would go. I would have then smashed my head face first repeatedly into the back of the seat in front of me until rendered duly unconscious so as to escape the agony of this retch-fest, but alas, no pen. I tried to borrow one from any other patrons in the theater, but wisely, they had all fled. I could only pass the time with idle dreams of listening to my Walkman while strolling down a set of railroad tracks.

Save your self the pain I went through, and avoid this flick.
... mættur í biðröðina.. :)

15. apríl 2004

.






Síðasta prófið
Soldið eins og síðasti eitthvað ... sjett er svo tómur að ég get ekki einu sinni skrifað eittvhað fa vtii..


Hver kannast ekki vð þesar aðstæur?







sjett... 500 kall fyrir þann sem fer í prófið fyrir mig á morgun...

2. apríl 2004

Hvernig þjöppun virkar, hosted by Tom Jones (himself)

Skyldulesning og útprentun fyrir prófið á laugardaginn... :D
A super majorly serious look at data compression

Loksins raunveruleg vísindaleg sönnun fyrir því að öll gögn er hægt að tákna með einu '0' og það að minnka fontinn í word hafi veruleg áhrif á endanlega skráarstærð...
Afhverju frétti ég alltaf allt síðast?.. Hver vissi að Bragi væri með blogg og að hann gæti verið fyndinn? Eða að Arnar og Haffi væru í hljómsveitinni Bensidrín.. sjett.. uppáhaldslagið mitt er án efa bensidrín... tjékkit át... (þótt maður sé alltaf síðastur með fréttirnar...)

Hérna er svo textinn fyrir þá sem vilja raula með (eins og ég...):
Bensidrín
þarf ekki að sofa
hræðist ekki neitt
bensidrín
það er ekki löglegt
bensidrín bensidrín
ekki nota það
bensidrín bensidrín
tekur það á morgnana
það býður góðan dag
bensidrín

heldur engri vinnu
getur ekki neitt
bensidrín
Það er ekki löglegt
bensidrín Bensidrín
ekki nota það
bensidrín bensidrín
drepru í þér baunina
það getur bara eytt
bensidrín

1. apríl 2004

Dömur mínar og herrar, niðurstöður kosninganna liggja fyrir!



Tvífarar ársins eru:
Aileen Carol Wuornos highway hookerGauti in the year 1996

Muna!! Ekki láta plata ykkur í dag!

Fékk þennan sendan í dag... vonandi er þetta ekki fyrirboði. Sjet, sjet, sjet.. bara 2 dagar í próf og ég kann ennþá ekkert... æi fer í mat...

31. mars 2004


Síðasti fyrirlesturinn í háskólanum var í dag (þ.e.a.s. í BS náminu, vonandi ). Af því tilefni var tekin mynd, (verð bara að segja að ég er ekkert smá drop-dead-gorgeous)! Fyrir ykkur sem ekki vita þá er ég EKKI með gleraugun!

Sendi svo inn mastersumsóknina mína strax eftir tímann ásamt út-slefuðu bréfi þar sem ég gerði grein fyrir því afhverju ég væri interested... iss annars er ég svo kúl að mér er alveg sama (sagði hann og hágrét inn í sér eins og litla stelpan sem hann er...).

Oh og by the way.. þá er ég að missa vitið í þessum próflestri.. (smá skemmti innskot: Setningin "ég er að missa vitið" skilar 16 niðurstöðum við googlun, þar efst í listanum kemur síðan sellan sem er einmitt málpípa "ungs fólk á vinstri væng stjórnmálanna"... go figure...)

29. mars 2004


Tilboð, tilboð!
Komst nýverið yfir til tölulega nýlega IntelliMouse Explorer mús, lítið notuð af fyrri eiganda. Mest notuð í kring um skráningar í vísindaferðir og í skoðannakönnunum á internetinu. Selst mjög ódýrt. Öll tilboð skulu skrást í athugasemdakerfið.

28. mars 2004

Hjálp! ég nenni ekki að læra!

Fyrir ykkur öll sem nennið ekki að gera það sem þið eigið að vera að gera.. (eins og ég). Ég vissi að ég hefði ekki átt að vera með einhverjar yfirlýsingar hérna... djöfull ég nenni ekki að læra.. á einhver eitthvað við þessu?

500 kall fyrir hvern þann sem nennir í stærðfræði prófið mitt á laugardaginn (úff ég meina? hver setur próf á laugardegi, djísss!)


HOHOHO.. þessi gaur er snillingur... vildi að ég gæti verið hann...
Jæja, þá er síðasta verkefnið (tja eða næst síðasta, fer eftir því hvernig litið er á það?) búið í skólanum. Núna eru bara 2 prüfung eftir og þá er þetta bara alveg að klárast... uss.. maður man bara eins og það hefði gerst í gær þegar ég byrjaði í HR. Ahhh those where the days.. þá vissi maður ekkert hvað mörg bæti væru í int, hvað viðmótsstaðlar, user/kernel space, context svitsjíng og hönnunarmynstur væru.

Uss simpler times, jæja best að verða ekki of nostalgískur hérna, á ennþá eftir að læra undir tvö próf og ekkert því ennþá öruggt...


Eitt tek ég þó með mér eftir þessi 3 ár og get öruggt svarað því (ef ég verð spurður í atvinnuviðtölum) að ég VEIT að ég get bara vakað í 2 sólarhringa samfleytt þar til að ég er farinn að kóða einhverja vitleysu.. og hananú!

27. mars 2004

Raunveruleikaþættir eru fyrir bjána!

Hve lágt er hægt að sökkva? Neðar en þetta? Eða kannski fyrir neðan þessa vitleysu?

It's conversation!

23. mars 2004

Tuché!...Jæja, best að vera ekkert að þessum helvítis aulaskap! Hef ákveðið að sækja um í Meistaranámi í tölvunarfræði í HR, hef dauðlangað allt frá því að ég vissi að dr. Yngvi Björnsson ætlaði að fara að kenna gervigreind og hafa umsjón með rannsóknum á því sviði niðurfrá. Uss.. maður hreinlega getur ekki látið svona tækifæri renna sér úr greipum.. allavegana að athuga hvort maður komist inn. Það eru reyndar ekki fleiri en 10 manns sem komast inn og þar af einungis 2-3 sem komast að í gervigreindarrannsóknunum, þannig að maður er ekki beint default á leiðinni í þetta :)

Dr. Yngvi mun halda kynningarfund á gervigreind á tæknimessu TD næsta fimmtudag (25. mars) í stofu 201 niðrí HR, allir sem hafa áhuga mæta, mæta... ;) tapið ekkert á því...

Vona samt að prófskírteinið verði eitthvað betra en hjá þessum gaur sem útskrifaðist með "sehr gut" á A4 blaði .... æi.. þjóðverjar...