Vid fórum parid til Palma í morgun (eldsnemma bara) drifum okkur í local straetóinn, búin ad plana thessa ferd alveg út í ystu aesar bara.. med straetoferdirnar alveg á hreinu og sonna.. Thad runnu reyndar tvaer grímur á hana Ronnslu mína thegar straetoinn smám saman fylltist af fólki og var ordinn alveg stútfullur thegar vid vorum loksins á leidinni út úr Magaluf (hún hélt ad vid myndum ekki geta trodist framhjá fólkinu til ad komast út.. hvad! madur er nú ekki med svo stóra bumbu .. !!)En eftir 40 mínútna straetoferd thá týndust nú fólkid smám saman út úr bussinum og restin fór út eins og vid á Markadinum sem var nú talsvert inni Palma sjálfri. Verd nú ad vidurkenna ad thessi markadur er nú bara hálfgert prump og ég maeli ekki med thví ad fólk fari neitt med brjáladar vonir á hann. Dýrari og minna úrval heldur en á strandtúristabúdunum og thaer eru nú sorglegar. Miklu skemmtilegra ad rolta bara um Palma og skoda mannlífid og búdirnar (neyddist til ad segja thetta vegna Ronnsu). Thetta var mjog fín ferd og vid kíktum í nokkrar búdir bara svona til ad kíkja.. ég fékk thessar fínu útivistarbuxur sem mig langadi í (svona haegt ad thrískipta theim.. svaka hentugt madur!).
Rannslan sudadi svo mikid í mér ad fara í verslunarmidstodina Porto Pi sem var hinum megin í borginni ad á endanum vard ég bara ad segja já og vid aetludum okkur ad finna einhvern gódan straeto thangad (var nú soldid labb). Eftir ad hafa bedid á straeto stodinni í smá tíma thá komumst vid ad thví ansi biturlega ad ef madur vill ad spaenskirstraetoar stoppi fyrir manni thá er eins gott ad veifa theim ansi hraustlega. Thannig ad eftir ad hafa misst af straeto thá vildi ég nú bara "rolta" thetta eins og madur segir.. en mín heittelskada var nú ekki alveg á theim buxunum.. en saettist loksins á thad svona eftir ad hún áttadi sig á thessari svaka gulrót sem verslunarmidstodin var .. :D
Thetta var svakalega skemmtileg ferd og ég maeli med Palma fyrir fólk sem fer til Mallorca (en sleppidi markadinum.. bara sad).

Hluti af markadinum

Rannslan svaka spennt í búdunum :)


Dýrasti hádegismatur í heimi (20 evrur)

Rannslan hladin innkaupapokum


Rannslan ad bída eftir straeto sem vid misstum svo af..

Ein alveg búin eftir allt shjoppingid










Lentum eftir fjogurra tíma flug hér í Mallorca á Spáni (sem er ef einhverjir vita ekki eyja hérna rétt út vid Spán..). 25 stiga hiti og sólskin.. Getur madur kvartad? Held ekki.. hofum ekkert gert gert nema bara slappad af hérna .. en thad var jú tilgangur ferdarinnar..






Fórum í bbq til Chris og Cameron (félaga okkar úr skandínavaklúbbinum), vorum þar í góðu yfirlæti ásamt Hallveigu, Per og Rikard (svíþjóð) og Serge (úkraínu). Hengum á dekkinu (lærðum muninn á paddeo, porch, deck og balcony.. hehe). Úðuðum í okkur Kanadísku krojtsvelt nautakjöti og hámuðum ís. Enduðum svo með að skella okkur niður í miðbæ og vorum dreginn inn á Goth-klúbb þar sem ég bjóst helst við að verða dreginn út aftur og sleginn niður.. (endaði víst samt þannig að fílefldur-górillu útkastari sakaði mig um að vera að slást.. djíses.. sér hann ekki að ég er náfölur-tölvunördaspýtukall.. hvern ætti ég að lemja.. dverga?!)
Obbosí.. ákváðum að nota okkur nýleigðu hjólin okkar í dag og um leið og allir í húsinu vöknuðu (hehe *roðn* um 1 leytið) þá skelltum við okkur út á vit ævintýranna hér í Edmonton. Nánast heiðskýrt og >20 stiga hiti .. getur ekki berið vetra :D
Já við fórum þennan líka góða hring hérna um nánasta umhverfið í "The River Valley". Svakalega fallegt hérna umhverfis ánna (sem rennur í gegnum miðjan bæinn). Fórum einhverjar fjallabaksleiðir reyndar og í gegnum eitt hundaklósett á leiðinni (hellingur af hundum á klósettinu þar), en enduðum í Fort Edmonton Park (C). Hann var að SJÁLFSÖGÐU lokaður en það kom ekki að sök þar sem að bílastæðið reyndist vera alveg fáránlega skemmtilegur staður :D. Sátum þarna hæst ánægð að horfa á froska, jarðíkorna (og venjulega íkorna) finkur og allskonar pöddur og annað góðgæti.. Mér fannst þetta alveg hreint magnað því ég hafði aldrei séð froska áður (nema náttúrulega hjá félaga mínum honum David.. en veit ekki hvort það telst með).
Hjóluðum líka framhjá einskonar húsdýragarðinum hérna í dalnum nefndum hinu frumlega nafni "Valley Zoo" (B) magnað.. ákváðum samt að taka annan hjólatúr og skoða hann þá. Hva? bara á morgun kannski ;)
Svo var þetta nú mest niðurímóti það sem eftir var ferðarinnar, skjótandi okkur á milli íturvaxinna kvenna að skokka og exebstíonista með hringi í öllum geirvörtum sem þeir fundu á sjálfum sér... 
Skelltum okkur í bæinn í dag. Þurftum reyndar að skjótast í skólann og skila hinum awsome græjum sem CSGSA lánuðu okkur fyrir tropical partíið okkar á föstudaginn (djöfull var þungt að halda á þessu marr... bara get varla lyft höndunum hehe). Athuguðum með hjólaleigur í leiðinni þar sem okkur hafði verið sagt að hægt væri að fá hræódýr hjól á leigu í SUB, uss $20 fyrir hjól í heilan mánuð ekki slæmur díll það.. en því miður voru öll hjólin þegar leigð þegar við komum þannig að við fengum ekkert. Fundum samt annan gaur (eina gaurinn) sem gat leigt okkur hjól frá miðvikudeginum fram til sunnudags. Núna verður frelsið aukið og við getum hjólað aðeins um Edmonton, séð aðeins meira af borginni en áður.. (maður er svoldið takmarkaður af einungis göngufæris-vegalengdunum svona til lengdar)...
Héldum þrusupartí á föstudaginn fyrir vini okkar úr tölvunarfræðideildinni. Buðum miklu fleiri en rúmast í íbúðinni okkar en sem betur fer mættu ekki allir sem við buðum en við vorum samt með fullt út úr húsi! Við höfðum farið á miðvikudeginum í mollið þar sem að Steinunn hafði spottað út einhverja þrusu partí-búð. Fórum að sjálfsögðu í hana og misstum okkur gjörsamlega, ákváðum að hafa tropical þema og keyptum helling af blómsveigum, cocktail-umbrellas og ýmsum frumskógar skrauti.. (þar á meðal frábært strápils). Öllum gestum var svo úthlutað blómsveig við komu og fengu blómaskreytt-frumskógar rör í drykki.
Héldum helvíti skemmtilegan leik í þessu partíi, sem spannst upp úr umræðu um vond-leika rauðvíns sem einhver kom með og lét alla smakka. Þannig að vandamálið var að velja besta rauð eða hvítvín sem hægt var en fyrir sem minnstan pening. Haldnar voru aðgreindar keppnir fyrir hvorn hópinn (rautt/hvítt) og fólk kom með flösku í annan hvorn eða báða hópana. Útbjuggum þetta fína keppnisblað og höfðum svaka þjóðlega vinninga (skotglös merkt með íslenska fánanum.. gerist ekki þjóðlegra).
Þessi "smakk" keppni var óheyrilega skemmtileg. Það voru 10 rauðvínsflöskur og 8 hvítvín sem kepptu. Uss við vorum nú reyndar ekki hinir reyndustu smakkarar þar sem flestir helltu bara í sig úr þeim glösum sem þeir fannst góð *hic* hehe.. Enda snarbötnuðu einkunirnar eftir sem áleið á kvöldið. :D Gerðum meira að segja tilraun með hvítvínið þar sem tveir komu með sömu tegundina að hafa aðra flöskuna fyrst og sá seinni síðast. Það fyndna var að seinni flaskan fékk yfirburða betri dóma heldur en sú fyrri :D óborganlegt hehe..
Meikuðum lítið annað á laugardeginum en að þrífa íbúðina (ryksuga saltið af gólfinu.. virkar svakavel á rauðvínsbletti.. hehe) annars bara klassískur ofur-þynnkudagur. 
