"Obfuscating simple things does not make you smart"
--I, myself, 2005
[Sverrir hits academia for 1024 damage]
[Academia misses Sverrir]
..haaHA! take that academia
"Obfuscating simple things does not make you smart"
--I, myself, 2005

hy•poc•ri•sy |hiˈpäkrisē| noun ( pl. -sies)
the practice of claiming to have moral standards or beliefs to which one's own behavior does not conform; pretense.
| Hegðun | SonyDRM | Vírus/Auglforrit |
| Sjálfvirk uppsetning án vitundar notanda | Já | Já |
| Fylgist með því sem notandi gerir á tölvunni | Já | Já |
| Hægir á tölvubúnaði og tölvuvinnslu notandans | Já | Já |
| Framkvæmir aðgerðir þvert á vilja notanda | Já | Já |
| Sér stillt til að nánast ómögulegt sé að taka eftir forritinu í keyrslu | Já | Já |
| Ómögulegt að losna við hugbúnaðinn án sérstakra hugbúnaðartóla | Já | Já |
| Óumbeðið sendir upplýsingar sem auðveldlega er hægt að misnota á óöruggan hátt | Já | Já |
| Keyrsla forritsins getur leitt til gagnataps í ótengdum hugbúnaði | Já | Já |
Yes, but I'm afraid I prematurely shot my wad on what was supposed to be a dry run, and now I think I have something of a mess on my hands.
Wow, there's just so many poorly chosen words in that sentence.


Af IMDB: The show is shot as a documentary, so character's swearing is bleeped out. However, the producers must find ways to obscure the mouths of the characters who are swearing so that their mouths don't have to be blurred out. This is often accomplished by cutting to a shot of another character reacting to the swearing, or by blocking the mouths with objects. Sometimes the characters resort to just covering their mouths with their hands.WTF! Hvað er að bandaríkjafólki (og þá sérstaklega FOX samsteypunni) það er ekki nógu asnalegt að *bíbba* út blótsyrðin (þó allir viti hvað verið er að segja) heldur verður líka að blurra út munninn á fólkinu þegar það blótar!!!
Episode 1-10 "Pier Pressure" (and the infamous J. Walter Weatherman) came about after FOX executives sent a note to the writers suggesting that in one of the episodes, Michael should "teach his son a nice lesson".
Vignir kynningastjóri planaði þessa líka frábæru vísindaferð í Marel á föstudaginn (28.). Ég verð að viðurkenna að sjálfur var ég svakalega spenntur að kíkja í heimsókn til þeirra í Garðabæinn til að fá að fræðast betur um hvað þetta áhugaverða hátæknifyrirtæki hefur og er að gera þessa dagana í tölvum og róbótum. Sérstaklega jókst ákafinn eftir að hafa lesið aðeins um nýju róbótana þeirra og tölvusjónarskurðartækin [sjá fréttasíðu Marel].
Við í FFT vorum beðin um að útvega fólk til dómgæslu fyrir forritunarliðin og vorum við nokkrir masters-strákar sem tókum það að okkur að sinna þeirri skyldu :). Haldinn var undirbúningsdagur á föstudaginn þar sem liðinn mættu og logguðu sig inn á þær tölvur sem þeim hafði verið úthlutað og athuguðu hvort allt væri ekki í lagi. Aðal keppnin hófst svo á laugardagsmorguninn (úff að vakna fyrir kl 8). Keppnisdagurinn var tvískiptur og var keppt í þremur deildum eftir erfiðleikastigi, Alpha (erfiðast), Beta og Delta (auðveldast). Fyrri hluta dagsins þá var öllum liðum útvegað verkefnablað með nokkrum litlum forritunarverkefnum til að leysa og höfðu þau frá 9 til 12:30 til að leysa u.þ.b. 30 spurningar (úff.. verð að viðurkenna að nokkrar voru nú bara ansi strembnar)
Hehe.. ekki var nóg að maður hafði verið að veltast í einhverjum nörda umræðum allan daginn en þá hitti maður tölvuleikjafélagana um kvöldið. Usss.. Núna um helgina var haldið BlizzCon en það var fyrsta leikjaráðstefna sem tölvufyrirtækið Blizzard heldur. En þeir smíðuðu m.a. World of Warcraft sem ég hef verð að dútla mér við að spila undanfarna mánuði. Í leiknum þá er ég hluti af félagi leikmanna (í leiknum, kallast guild) í því er fólk allstaðar að úr heiminum og þar á meðal 5 íslendingar (Ég, Styrmir, Óli, Bjarni og Ottó). Við ákváðum því að hittast loksins í alvöru-heimninum, splæsa í mat saman og horfa á efnið af ráðstefnunni (allt á alnetinu maður!). Þetta var þessi fínasta nördasamkoma og þakka ég Ottó sérstaklega fyrir gestrisnina að bjóða okkur heim til sín þetta kvöld :) Magnað kvöld!52,1 GB Users/Hvað er í application möppunni minni sem getur mögulega verið 9 GB að stærð? Nú þar liggur nú bara World of Warcraft í öllum sínum 4,6 Gígabætum en til viðbótar lág þar búrkvalurinn iDVD sem tók undir sig 1,5 GB! *delete* Auk þess fengu nokkur ónotuð um 30MB hvert forrit að hverfa einnig.
9,0 GB Applications/
5,6 GB Library/
2,4 GB System/
...
1,6 GB Application SupportJæja þetta er nú ekkert smá support! Og eftir að hafa skoðað aðeins dýpra þá var í þessar möppu undir "Garageband" tæpt 1,5 GB af hljóðskrám. *delete* Það sama var upp á teningnum með möppuna Audio en þar undir "Apple loops>Apple>Apple Loops for Garageband" leyndust auka 1.1 GB af hljóðskrám (sem btw er hægt að spila í endalausri lúppu.. awsome!) *delete*.. Reyndar var ég hálf ragur við að henda út prentara drævurunum þannig að þeir fengu að halda sér.. þar til næst!
1,6 GB Printers
1,1 GB Audio
400 MB Documentation
...
400 MB Users/Shared/GarageBand Demo SongsEn eftir þessa stuttu hreingerningu þá stend ég uppi með tæð 9GB laus sem ég hef verið að eyða í einhverja tóma vitleysu áður á harðadiskinum mínum. Geyma einhver forrit og skrár sem aldrei munu verða skoðaðar... Eftir standa reyndar nokkrar möppur sem ekki er hægt að henda lengur (eins og thesis mappan mín sem er tæp 3GB og 2,5 GB Tiger öryggisimage en jæja..
*** MB Users/USERNAME/Library/Caches/...
Konur - leggjum niður störf
Hinn 24. október næstkomandi verður kvennafrídagurinn endurvakinn, en þá eru liðin 30 ár frá kvennafríinu 1975. Konur eru hvattar til að leggja niður störf klukkan 14:08 en þá hafa þær unnið fyrir launum sínum, ef litið er til þess að atvinnutekjur kvenna eru 64,15% af atvinnutekjum karla. Samkvæmt þessu eru konur búnar að vinna fyrir sínum launum, eftir fimm tíma og átta mínútur (miðað er við vinnudag kl. 9-17). [meira]
Eldhresst konur.. ég viðurkenni fúslega að ég er stuðningsmaður jafnréttisbaráttunnar , hvort sem um er að ræða mismunun byggða á kyni, kynhneigð, húðlit, trú, launum, menntun o.s.frv..
Loksins segi ég bara.. loksins loksins loksins getur maður keypt sér sjónvarpsefni í gegnum alnetið og það líka bara löglega. Ímyndiði ykkur það Lost og Desperate Housewifes kominn á tölvuna ykkar fyrir minna en 200kr daginn eftir að þátturinn er sýndur í USA ... og það besta.. allt FULLKOMLEGA LÖGLEGT! 
Eureka!
I have found it!
-Archimedes
Gleði og hamingja, loksins.. LOKSINS eftir tæplega fimm mánaða vinnu þá römbuðum við á einhverja vísbendingu um að hugmyndin að meistaraverkefninu mínu sé ekki algjört kjaftæði....if you are disappointed simply say, "It is not for me."
Do not insist on the whole ship returning to port because you feel seasick or demand that the whole house be burnt to the ground because you detest its color.
-- Kendall Payne
Þetta getur hljómað mjög fyndið en það er það ekki og hérna eru nokkrar ástæður fyrir því: