
Síðasti fyrirlesturinn í háskólanum var í dag (þ.e.a.s. í BS náminu, vonandi
). Af því tilefni var tekin mynd, (verð bara að segja að ég er ekkert smá drop-dead-gorgeous)! Fyrir ykkur sem ekki vita þá er ég EKKI með gleraugun!
Sendi svo inn mastersumsóknina mína strax eftir tímann ásamt út-slefuðu bréfi þar sem ég gerði grein fyrir því afhverju ég væri interested... iss annars er ég svo kúl að mér er alveg sama (sagði hann og hágrét inn í sér eins og litla stelpan sem hann er...).
Oh og by the way.. þá er ég að missa vitið í þessum próflestri.. (smá skemmti innskot: Setningin "ég er að missa vitið" skilar 16 niðurstöðum við googlun, þar efst í listanum kemur síðan sellan sem er einmitt málpípa "ungs fólk á vinstri væng stjórnmálanna"... go figure...)

Hjálp! ég nenni ekki að læra!
Jæja, þá er síðasta verkefnið (tja eða næst síðasta, fer eftir því hvernig litið er á það?) búið í skólanum. Núna eru bara 2 prüfung eftir og þá er þetta bara alveg að klárast... uss.. maður man bara eins og það hefði gerst í gær þegar ég byrjaði í HR. Ahhh those where the days.. þá vissi maður ekkert hvað mörg bæti væru í int, hvað viðmótsstaðlar, user/kernel space, context svitsjíng og hönnunarmynstur væru.
Jæja, best að vera ekkert að þessum helvítis aulaskap! Hef ákveðið að sækja um í
Hvað er að gerast? Maður bara svo svakalega bissí og enginn tími fyrir alnetið! :)
Ekkert að gerast... tjellingin fer til Danmerkurinnar í næstu viku, oh well best að fá þá lánaða fallbyssu til að vekja mig á morgnanna. Alltaf, um leið og Rannveig er ekki heima þá asnast ég til að vaka frameftir allri nóttu að gera ekki neitt í tölvunni... hvað er málið? Er ég sá eini sem er þjakaður af þessari Maka-vöku?

Linux.. taka 2..
Jæja... heim að baka fyrir afmæli konunnar á morgun. 25 ára "oldie"... maður er nú bara farin að hugleiða upgrade? :)
Af slashdot í morgun:
Ó nei.. þetta er alltof fyndið...
.. eða eins og Justininn orðar það svo smoothlý sjálfur..."wardrobe malfunction"... 
Mikið að gerast í dag. Ég er skráður í námskeiðið Upplýsinga og samskiptatækni í skólakerfinu þar sem að við erum að skoða nýtingu tölvutækninnar í framhaldsskólum á Íslandi. Við erum að vinna verkefnin núna þar sem við eigum að kanna hvernig nemendur nota tölvur í tímum, til þess þá fengum við að fara í tíma í
Jæja við erum kominn í aðstöðuna okkar niðrí VÍS og lokaverkefnið er hafið af fullu. Aðstaðan er kominn upp og forrit instölluð, erum reyndar að bíða eftir .NET en það kemur vonandi innan tíðar.