Afhverju var ég fullur á virkum degi, afhverju mætti ég ekki í tíma, ... maður hálf skammast sín fyrir að vera ekki duglegri að uppfæra síðuna.. jæja. Búið að vera brjálað að gera hjá mér í þessum mánuði, skólinn að gera útaf við mann!! :s
Fór með Rönnsu pönsu á árshátíð VÍS síðasta laugardag, fín skemmtun þó svo að maturinn hafi verið sorp og þjónustan hörmung. Btw. kominn nýr aðili á dauðalistann minn: "Þjónninn sem sullaði rauðvíni á mig á árshátíðinni". drep'ann!!!
Annars er ég bara að klára skilaverkefni í tölvugrafík þessa stundina, erum að smíða 3D maze... uss ætli leikjaforritunin eigi við mann ??? veitteggi.
Jæja best að skella sér út í hagkaup, fá sér eitthvað í gogginn (vona bara að maður eigi eitthvað inn á kortinu.. hmm?). Erfitt að vera námsmaður, HVAR ERU NÁMSLÁNIN MÍN!!!
Afhverju eru allir að reyna að vera fyndnir og það líka með sama
Var gjörsamlega fullkomlega rassskelltur í stærðfræðiprófinu í morgun. Djöfulsins helvítis, lærði og lærði gat reiknað 98% dæmanna sem lögð voru fyrir en prófið var skítur! Alltof stutt og fáranlega langt... Páll Jónson: "Þú ert kominn á dauðalistann minn, beint fyrir neðan Guð!".
Hoho.. Loksins, loksins kallinn er kominn í fyrstu 2 stafa töluna.
Frábært. :D :D Bestu fréttir í heimi. Svo virðist sem Philips hafi fundið leið til að búa til dual-sided DVD-R diska. Fyrir ykkur sem vitið ekki hvað í helvítinu þetta þýðir þá er staðan á dvd markaðinum núna að skrifanlegir dvd diskar (DVD-R diskar) eru einungis single-sided því nútíma dvd brennarar geta einungis brennt í gegnum eitt lag. Á meðan að myndadvd diskarnir eru allir dual-layer (verður að framleiða tvo single-layer og pressa þá svo saman).
Vá næstum 3 vikur síðan maður hefur skrifað eitthvað á síðuna. Þvílíkt kæruleysi...
Þessa vikuna hefur verið brjálað að gera hjá mér í skólanum, endalaus skilaverkefni (og ekki af léttari toganum). En framtíðin er bjartari, ætla að reyna að komast í vísindaferð á morgun (förum í Landsvirkjun) og svo er karókí kvöld í vinnunni. Hehehe, þannig að maður mun mæta sót-ölvaður beint í karókíið, ætli maður taki ekki þátt (en fer algjörlega eftir áfengismagni, sennilega ryðst inn á svið eftir keppnina og tek nokkur vel valin bubbalög.. hoho). Hafiði það annars bara sem best og góða helgi.
Lítið að gerast þessa dagana nema náttúrulega skólinn :) Kíkiði á þennan
Karen sæta er komin með
Ansans, ftp aðgangurinn að skólasvæðinu er eitthvað að stríða mér þessa dagana þannig að ég get ekki postað neinu nýju. Jæja, við bíðum bara róleg. Annars ætla ég að sækja ísskápinn úr viðgerð í dag og í framhaldi af því neyðist til að drattast með hann upp á 3ju hæð (aftur :s). Er samt mjög sáttur við þá hjá Frysti og kæliþjónustunni, snöggir og næs gaurar.
Arg.. vík satan! Þessi dagur er dagur djöfulsins, eintómar freistingar allsstaðar. Byrjar á því að
Flutt! og núna er það bara skólinn... fuck! Ég sem ætlaði að vinna upp um helgina það sem ég hef verið að sleppa í síðustu viku (sökum flutningavesens) og þá er bara skellt á okkar hóp huge fyrirlestrar verkefni í málstofunni í næstu viku. Tveir fyrirlestrar um "Dynamic memory in the Kernel" og við eigum að tala um það í 2x40 mín.. guð minn almáttugur. Eins gott að maður er með góðu fólki í hóp. :)
Ég er svo heimskur! Við erum að klára að flytja í dag, þ.e. í kvöld erum við endanlega flutt heim til mömmu minnar og pabba. Í gær vorum við að ganga frá íbúðinni, þ.e. þrífa og þ.h. Að sjálfsögðu var hluti af því að afþýða ísskápinn. Þar komum við að heimsku gerðum mínum. Málið var að það hafði safnast um sæmilegur klaki í frystiboxið sem þurfti að losna við. Ég hugsaði með mér að best væri að reyna að vinna aðeins á þessu svo þetta myndi nú þiðna á innan við viku. Það tókst ekki betur en svo að mér tókst að gera gat á kælielementið í skápnum og fékk allt freonið úr skápnum frussandi framan í mig! Þvílíkur dumbass!! Ég hringdi náttúrulega í dauðans ofboði í einhverja viðgerðarkalla (lenti reyndar á helvíti fínum gaur sem róaði mig niður og fullvissaði um að ég myndi ekki deyja af freoni). En eins og allt annað sem kemur fyrir mig þá krefst þetta þess að ég drusla risa-ísskáp niður af 3ju hæð og í viðgerð í kópavoginum útaf gati sem er minna en títiprjónshaus!! Ég er svo mikill hálfviti! Annars var þessi dagur allur svona (og reyndar öll vikan), tölvan klikkaði í skólanum, eyðilagði ísskápinn, stíflaði posann í húsasmíðjunni og tókst að rekast í allt!
Jæja, þá er loksins (því miður) komið að því að við skötuhjúin flytjum af Njálsgötunni og heim í heiðardalinn. Flytja aftur heim í fangið á gömlu hjónunum í Rjúpufellinu á meðan að við klárum námið okkar. Fuck hvað gamla herbergið mitt er "orðið" lítið (kenni að sjálfssögðu bumbunni um hve mikið herbergið hefur minnkað).
Helvítis andskoti !!!! Ég veiddi ekki nokkurn skapaðan hlut í veiðiferðinni góðu. Við komum austur í ágætis veðri um klukkan 2 á föstudaginn og hentum draslinu inn í hús og drifum okkur út að veiða. Lítið vissum við að þetta yrði síðustu þurru klukkustundirnar sem við myndum eiga þarna. Ekkert var veitt á föstudaginn, en við kipptum okkur nú ekki mikið upp við það og vöknuðum eldhress á laugardagsmorgun. Okkar beið þá hin þokkalegasta rigning og slagveður en það dró ekki úr manni kraftinn og við veiddum alveg frá 8 - 13 þann daginn, án þess að verða svo mikið sem var við nokkurn skapaðan hlut.
Jæja þá er loksins komið að því! Maður er á leiðinni í (fyrstu og sennilega síðustu) alvöru veiði sumarsins, VÚHúúúú... :) Ætla að skella mér ásamt nokkru góðu fólki að veiða í
Næst síðasti vinnudagurin fyrir frí/skóla. Jæja hlaut að koma að því, en hvað varð um sumarið? Mér finnst eins og ég hafi ekki getað gert nema brot af því sem ég ætlaði mér :s Oh, well það kemur sumar eftir þetta sumar og vetur eftir þennan vetur...